Gleymdur gullmoli
Jagúar E-Type er af mörgum talinn einn fallegast bíll sem smíðaður hefur verið. Það á kannski helst við um fyrstu kynslóðina, Series 1 bílinn.
Allt upprunalegt
Þessi E-Type kom á götuna kolsvartur og með svartri innréttingu. Hann var seldur nýr til Ronald Goldstein frá East Longmeadow, Massachusetts.
Bíllinn hefur tilheyrt sömu fjölskyldunni frá upphafi en verið í geymslu síðan 1972. Hann er ekinn rétt rúmlea 13 þús. kílómetra.
Ótrúlega heill
Bíllinn hefur verið ansi lengi í geymslu og ytra yfirborð hefur látið á sjá. Yfirborðsryð sést á stuðurum og plastglugginn í blæjunni er lítið eitt skýjaður.
Lakkið er upphaflegt og hann er meira að segja á upprunalegu Dunlop hjólbörðunum.
Upprunalegt Blaupunkt útvarp, upprunaleg blæja, þjónustubók og ábyrðarskírteini og fleira.
Það má eiginlega segja að þessi bíll sé einn af einstökum perlum bílasögunnar. Það má alveg búast við að menn bjóði vel í gripinn.
Byggt á grein Autoblog.
Aðrar umfjallanir
Fólksvagninn, Volkswagen, VW, Bjallan… Bjöllur heimsins eru fjölmargar og ekkert furðulegt að enn sé góður slatti til af þeim 21,529,464 sem framleiddar voru frá 1938 til 2003. En ekki eru þær þó alls staðar kallaðar bjöllur með vísan til skordýrsins. Alls ekki!
Þær eru ekki margar, konurnar á tíræðisaldri, sem rúnta um á Jagúar X-TYPE á sunnudögum. Hvað þá að þær hafi lært bifvélavirkjun í seinni heimsstyrjöldinni!
Rex er nýr bíll frá Subaru merkinu sem kemur bara framjóladrifinn og ekki með boxer-vél - og bara í Japan
Brimborg kynnir glænýjan Citroën ë-Berlingo 100% hreinan rafmagnssendibíl sem væntanlegur er til landsins í apríl og mun Brimborg bjóða hann í tveimur...