Rafknúni jepplinginn MG Marvel R Electric kynntur í október
MG frumsýndi í mars tvær nýjar kynslóðir rafbíla sem koma á Evrópumarkað á árinu.
Útfærslur eru þrjár, Comfort, Luxury og Performance og eru forpantanir viðskiptavina hafnar hjá BL.
Þægindi
MG Marvel R Electric er rúmgóður jepplingur (SUV) sem var sérstaklega hannaður fyrir þarfir Evrópubúa sem leggja áherslu á fallega hönnun, þægindi og afköst.
Í afturhjóladrifnu útgáfunni er að auki 150 lítra farangurspláss undir hlífinni að framan.
Þá er Marvel R Electric búinn 19,4 tommu snertiskjá fyrir stjórn afþreyingar og upplýsinga og rúmlega 12 tommu stafrænu mælaborði ásamt fjölbreyttum tengimöguleikum fyrir síma og viðtæki ásamt þráðlausri tengingu við internetið, nákvæmt leiðsögukerfi og fleira.
Fjórhjóla- eða afturhjóladrif
Fjórhjóladrifin útgáfa MG Marvel R Electric er búin þremur rafmótorum; einum að framan og tveimur að aftan. Bíllinn er 288 hestöfl, drægi rafhlöðunnar er um 370 km og snerpan úr kyrrstöðu í 100 km/klst. 4,9 sekúndur.
Bíllinn er 180 hestöfl, drægið um 402 km og snerpa úr kyrrstöðu í 100 km/klst. 7,9 sekúndur.
Hámarkshraði MG Marvel R Electric er takmarkaður við 200 km/klst. óháð útfærslum.
Getur hlaðið fartölvu og rafskutlu
Í MG Marvel R Electric er 70 kWh rafhlaða sem unnt er að hlaða úr 5% í 80% á aðeins 43 mínútum. Þá er bíllinn búinn svokölluðu vehicle-to-load rafkerfi sem leyfir m.a. tengingu við annað og ótengt rafkerfi, t.d. til að knýja loftdælu eða hlaða fartölvu eða rafskutlu.
Öryggi og notagildi
MG Marvel R Electric er búinn sívirkum nútíma öryggisbúnaði, m.a. MG Pilot-kerfinu sem inniheldur fjórtán mismunandi öryggiskerfi sem vara við aðsteðjandi eða mögulegum hættum í umferðinni.
Nánari upplýsingar
Hægt er að kynna sér mismunandi gerðir MG á vefsíðunni mgmotor.is, þar á meðal búnað MG Marvel R Electric sem frumsýndur verður hjá BL við Sævarhöfða í október.
Aðrar umfjallanir
Eitt mikilvægasta öryggistækið á bílnum eru þurrkublöðin. Núna þegar veður gerast misjöfn er mjög mikilvægt að þau séu í lagi...
Sérsmíðadeild hollenska vagnasmiðsins Niels van Roij mun framleiða aðeins fimm blæju-útgáfur af Valiance-gerð af nýja Defender árið 2022.
Allir sem eiga bíl þekkja ventilinn í felgunni sem er notaður til að dæla lofti í dekkið og til að mæla þrýstinginn þegar þess þarf, en hvenær kom hann til sögunnar og hver fann hann upp?
Land Rover er að undirbúa glænýja útgáfu af einni mest seldu gerð sinni - Range Rover Sport. Sport-útgáfan selst betur en Range Rover í fullri stærð...