Er bíllinn tilbúinn fyrir veturinn – annar hluti – þurrkublöðin
Eitt mikilvægasta öryggistækið á bílnum eru þurrkublöðin. Núna þegar veður gerast misjöfn er mjög mikilvægt að þau séu í lagi.
Hér má sjá eldri gerð þurrkublaðs með málmgrind sem heldur um gúmmíhluta þurrkublaðsins og fyrir neðan.
Nýrri gerð þurrkublaða, oft úr sílíkonblöndu, eru ekki með neina grind, þannig að þau falla betur að yfirborði rúðunnar og safna minna af snjó og krapa að vetraralagi.
Gott að nota vatnsfráhrindandi vörn á framrúðuna
Til viðbótar við góð þurrkublöð getur verið frábær viðbót að nota vatnsfráhrindandi varnarefni sem er borið á framrúðuna. Dæmi um slíkt efni er Rain-X, sem borið er á hreina framrúðuna (gæta þarf þess að herinsa hana vel áður en efnið er borið á) og síðan skolað með vatni og þurrkað yfir með mjúkum klút eftir að efnið hefur þornað á rúðunni. Sá sem þetta skrifar hefur notað Rain-X um árabil með ágætum árangri.
Hér má sjá nokkur dæmi um vatnsfráhrindandi efni sem gott er að bera á framrúðuna og bæta þannig útsýnið fram á veginn í rigningu og slæmu skyggni: Rain-X, Rain-Away og loks Glaco soft99. Þetat eru allt vörur sem við höfum keypt sjálfir og notað án skuldbindinga við innflytjanda og álitið byggist á eigin reynslu höfundar.
Aðrar umfjallanir
Háskólanemi að nafni Nathan Lee sat í bílnum sínum á bílastæðinu við stúdentagarðana þegar hann sá risastórt tré falla þvert yfir stæðið. Hann náði að forða sér en tveir bílar urðu fyrir trénu. Miðað við útlitið á öðrum bílnum er eins gott að hann var mannlaus þegar þetta gerðist!
Volkswagen rúgbrauð, Samba er þessi flott bíll kallaður. Bíllinn sem um ræðir er nýlega uppgerður og mjög sjaldgæf útgáfa frá árinu 1962...
Hugvekja, hrollvekja eða bara skoðun blaðamanns; skiptir ekki máli hvað það heitir. Hér þarf blaðamaður að tjá sig aðeins og það er nú aldeilis vel við hæfi á sunnudegi sem þessum.
Sænska „elgsprófið“ lék rafbíl Ford, Mustang Mach-E, grátt en afturendi bílsins kastaðist til á brautinni...