Frumgerð Ineos Grenadier 2022 í reynsluakstri

    • Blaðamenn Auto Express velta því fyrir sér hvort Ineos Grenadier geti virkilega fyllt tómarúmið sem gamli Land Rover Defender skildi eftir sig? Þeir fengu frumgerð bílsins til að prófa þetta...

Það sperrtu margir augu og eyru þegar það fréttist að auðmaðurinn Jim Radcliffe, ríkasti maður Bretlands og sá, sem keypt hefur fjölmargar jarðir á Norðausturlandi til að vernda íslenska laxastofninn væri kominn á fullt í bílaiðnaðinum og hefði í hyggju að framleiða „alvöru arftaka“ Land Rover Defender-jeppans. Bílinn sem kallast Grenadier eða „fótgönguliðinn“ átti í upphafi að setja saman í verksmiðjum Ineos í Bridgend í Wales, nálægt Ford vélarverksmiðju sem búið var að tilkynna að verði lokað 2020. Radcliffe ætlaði að fá iðnaðarmenn frá Ford-verksmiðjunni til starfa við smíði jeppans.

image

Auðmaðurinn Jim Ratcliffe, umfangsmikill jarðaeigandi hér á landi, hyggst framleiða raunverulega arftaka Land Rover Defender sem koma mun á markað á næsta ári. Hér á myndinni er hann fyrir utan Grenadier-pöbbinn í London þegar hann var að kynna fyrirætlanirnar um nýja jeppann, sem einmitt sækir nafn sitt í nafn þessa pöbbs.

image

Frumgerð í reynsluakstri

Á dögunum fengu blaðamenn breska bílavefsins Auto Express frumgerð Grenadier til reynsluaksturs, og af því að við vitum að margir aðdáendur Land Rover, og þá sérstaklega gamla góða jeppans, hafa mikinn áhuga á að fræðast nánar um þennan nýja Grenadier-jeppa þá gefum við Auto Express orðið:

„Þegar Grenadier verður hleypt af stokkunum mun bíllinn vera nánast einstakur í sínum flokki“, segja blaðamenn Auto Express.

„Kaupendur sem hafa beðið eftir nákvæmlega slíkum bíl verða ekki fyrir vonbrigðum, en það á eftir að koma í ljós hversu margir kaupendur vilja eitthvað eins og Grenadier. BMW vélar lofa afköstum og endingu og þó að fjöðrunin beinist að öruggri notkun á vegum þá skilar hún minni þægindum við erfiðar aðstæður í torfærum, þar sem hún skarar fram úr.

image

Og þeir Auto Express-menn halda áfram: „Margir nútíma jeppar henta í besta falli fyrir moldarvegi en nýi Ineos Grenadier er í raun fyrsti nýi bíllinn í langan tíma sem vill beinlínis og án málamiðlunar fara í torfærur“.

„Við getum séð það við fyrstu sýn. Jafnvel þó útlitið líkist greinilega ákveðinni fyrirmynd frá Solihull - á endanum verður torfærubíll einfaldlega að líta út eins og Grenadier lítur út.

Hagnýtt, skýrt og hagnýtt. Og fyrir utan nýjasta Defender, þá er það bíll með fáa alvöru keppinauta, sleppum hinum dýra Mercedes G-Class og Jeep Wrangler, sem er meira svona lífsstíll“.

image

Síðustu prófanir fyrir framleiðslu

„Hjá Magna-Steyr í Austurríki, þróunarfélaga Ineos, er verið að leggja síðustu hönd á þróun bílsins fyrir framleiðslu. Og við hjá Auto Express höfum verið að aka á vegum og utan vega í nýjustu frumgerðinni“.

Heilir öxlar frá dráttarvélaframleiðandanum Carraro eru settir að framan og aftan á Grenadier. Horft á milli þeirra og öflugs hússins fyrir mismunadrifið sýnir gildið sem Ineos hefur lagt á endingu.

Vélarnar eru ekki lengur með forritun frá BMW, en öflug bensínvélin er með stöðugt tog og mjúk afköst. Aftur á móti finnst þeim hjá Auto Express dísilvélin vera hæfari ímynd Ineos. Hún er með áberandi meira tog og afl – mikið aflið er greinilegt, en það er smá grófleiki í vélinni, tap á fínpússun frá upphafi vélarinnar hjá BMW.

image

Töluverð þróun eftir

Það er greinilegt að það á eftir að fínstilla undirvagninn að mati Auto Express, en sem bíll finnst þeim að Grenadier ótrúlega einbeittur hvað varðar stöðugleika og það lítur út eins og verkfræðingarnir hafi reynt töluvert til að ganga úr skugga um að hann sé ekki hættulegur á vegum. Tilhneiging til að lyfta sér í beygjum er til staðar, en Grenadier réttir sig líka hratt af, svo það er ekki of auðvelt að velta.

image

En það er í torfærum þar sem þessi nýi bíll nýtur sín virkilega, að sögn blaðamanna Auto Express.

„Grenadier er í essinu sínu á afar krefjandi torfærubraut í aðstöðu Magna í Graz.

Þessi braut er með risastórum holum, klöppum og grjóti. Þú tekur strax eftir að fjöðrunin er stífari en Mercedes G-Class og okkur er sagt að hún verði ekki miklu mýkri þegar bíllinn fer í framleiðslu. En gripið er framúrskarandi, með tveggja öxla mismunadrifslæsingum (aukabúnaður) enda sýndi bíllinn ótrúlega klifurhæfileika í miklum og hálum halla í fjalllendi. Það sem meira er, það finnst líka að bíllinn er vel smíðaður - jafnvel þessar handsmíðuðu gerðir áður en röðin kemur að fjöldaframleiðslu eru að mestu án skrölts, jafnvel á hraða“.

Innanrýmið er enn óljóst

image
image

„Nákvæmlega hvernig Grenadier mun líta út að innan er enn þá haldið leyndu af Ineos; það kemur ekki í ljós fyrr en í júlí, segja blaðamenn Auto Express.

„Við höfum í raun ekki leyfi til að segja mikið en við getum samt sagt frá að það verður ekki allt tengt notagildi og það verða nokkrar flottar áherslur í innanrýminu.

Í öllum tilvikum er það tilfinningin eins og það sé meira pláss inni í Grenadier en í Defender - kemur ekki á óvart í ljósi þess að nýi jeppinn er aðeins lengri og hærri en 110 afbrigðið af Land Rover. Þetta á einnig við um farangursrýmið og hingað til vissum við ekki alveg hve ótrúlega breiðar tvær ósamhverfar afturhurðir geta opnast til að fá aðgang að farmrýminu“.

(byggt á grein Torsten Siebt á vef Auto Express)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is