Saga Dacia er ævintýri líkust
Fljótlega á þessu ári verða þau skemmtilegu tímamót í sögu Dacia Duster að tveggja milljónasta eintakinu verður ekið af færibandi bílaverksmiðjunnar í Mioveni í Rúmeníu frá því að framleiðsla bílsins hófst árið 2010.
Saga Dacia hefur verið ævintýri líkust allt frá kaupum Renault á fyrirtækinu og markaðssetningu nýs bíls með nafninu Logan var ekið af færibandinu í Mioveni. Logan varð samstundis einn söluhæsti fólksbíllinn í mið- og austur-Evrópu auk Rússlands og er enn afar vinsæll um alla Evrópu.
Duster er góður ráðahagur
Aðalsmerki Duster hafa frá upphafi verið einfaldleiki, þrautseigja, lág bilanatíðni og hagstætt verð enda hefur jepplingurinn verið meðal bíla í uppáhaldi kaupenda á öllum helstu lykilmörkunum, hvort sem litið er til fjölskyldna, einyrkja eða fyrirtækja af flestu gerðum og stærðum.
Nýr Duster á mínútu fresti
Að meðaltali er nýjum Dacia Duster ekið af framleiðslulínunni í Mioveni á 63 sekúndna fresti eða um eitt þúsund talsins á hverjum virkum vinnudegi. Á þessu ári fagnar framleiðandinn þeim áfanga að tvær milljónir Duster hafa verið framleiddar og seldir í nálega 60 löndum víða um heim.
Til að gefa einhverja hugmynd um bílafjöldann þá þyrfti um 2.100 alþjóðlega fótboltavelli til að rúma fjöldann.
En eins mætti raða þeim í einfalda röð og þá næði halarófan frá Helsinki til Ankara og aftur til baka.
Helstu markaðirnir
Mikilvægustu markaðir Dacia Duster eru fimm, þar sem Frakkland er í 1. sæti með um 455 þúsund nýskráningar frá 2010. Ítalía er næst stærsti markaðurinn með 258 þúsund bíla, Þýskaland með 211 þúsund, Tyrkland 152 þúsund og Spánn 124 þúsund bíla.
Ýmis séreinkenni markaða
Dacia Duster á sér aðdáendur af öllu tafi víða um lönd. Svo dæmi sé tekið er Duster vinsælli meðal kvenna en karla í Bretlandi.
Frakkland Þýskaland, Bretland, Spánn og Ítalía eiga það sameiginlegt að þar er stór hluti kaupenda virkt útivistarfólk með einum eða öðrum hætti.
Til að mynda stunda 23% eigenda göngur og hjólreiðar, 12% eru miklir aðdáendur hjólreiða og 9% stunda ferðalög sem aðaláhugamál. Í þessum sömu löndum búa 44% viðskiptavina í hinum dreifðari byggðum, 30% í litlum bæjum eða þorpum, 10% í meðalstórum borgum og 11% í úthverfum borga.
Aðrar umfjallanir
TÓRÍNÓ – Arftaki Fiat New 500 litla rafbílsins verður áfram smíðaður í Mirafiori verksmiðjusamstæðunni í Tórínó...
Já, svei mér þá! Ég held það bara. Sturlaða kittið fyrir Dacia Duster sem við fjölluðum um sl. haust er enn geggjað, en hvað með þetta? Já, hvað finnst ykkur? Sprengir þetta skalann?
Toyota Crown, bíll sem er þekktur fyrir að vera aðalbíll japanska fyrirtækja- og stjórnmálamanna, er að koma á markað á heimsvísu frá og með næsta ári með áætlanir um að selja útgáfur af bílnum í 40 löndum og svæðum, að því er fram kemur í frétt frá Bloomberg.
Jeremy Clarkson er opinber persóna sem á sér ýmsar hliðar. Hann getur farið alvarlega yfir strikið og svo getur hann verið alveg sprenghlægilegur. Hér er ágæt samantekt af skemmtilegum augnablikum úr þáttum hans í gegnum tíðina.