Mustang Mach-E rafbíllinn á Bíladögum
Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er kominn til landsins og verður á Bíladögum á Akureyri dagana 17.-19. júní og til sýnis og reynsluaksturs hjá Brimborg Akureyri á föstudeginum 18. júní.
Kraftmikill, fjórhjóladrifinn, langdrægur rafbíll á Bíladögum
Ford Mustang Mach-E sem verður á Bíladögum er búinn fjórhjóladrifi og 351 hestafla rafmótor sem skilar 580 Nm af togi og kemur bílnum í 100 km hraða á aðeins 5,1 sekúndu. Hann er búinn 98 kWh drifrafhlöðu sem skilar honum drægni upp á 540 km og kemst því auðveldlega frá Reykjavík til Akureyrar á einni hleðslu.
Dagskrá Ford Mustang Mach-E á Bíladögum:
- 17. júní: Bíla - og tækjasýning - Mustang Mach-E á staðnum.
- 18. júní: Mustang Mach-E til sýnis- og reynsluaksturs frá kl. 16-18 hjá Brimborg Akureyri við Tryggvabraut 5.
- 19. júní: Götuspyrna - Mustang Mach-E keppir í flokki fjórhjóladrifinna bíla. Ökumaður Jóhann Egilsson, Kvartmíluklúbbnum og Íslandsmeistari 2020 í Formúla 1000.
Goðsögnin rafmögnuð
Það má með sanni segja að blað sé brotið í sögu Ford Mustang sem er goðsögn í bílaheiminum og hefur hingað til aðeins fengist sem tveggja dyra sportbíll.
Í fyrsta skipti í 55 ára sögu þessa fræga bílamerkis er ný gerð sett á markað. Og goðsögnin er nú leiðinni til Akureyrar.
Langdrægur ferðarafbíll fyrir alla fjölskylduna í allar ferðir allt árið
Ford Mustang Mach-E er einstakur ferðarafbíll í flokki stærri bíla, rúmir 4,7 metrar að lengd og því feikilega rúmgóður fyrir fimm farþega.
Farangursrými að aftan er stórt, 402 lítrar og stækkanlegt með því að fella niður aftursætisbök, að hluta eða öllu leiti.
Að auki er hann með farangursrými að framan (frunk) sem er 100 lítrar sem gefur margvíslega möguleika.
Allt að 610 km drægni
Ford Mustang Mach-E fæst í fjórum mismunandi gerðum og með tveimur stærðum af drifrafhlöðu fyrir mismunandi þarfir kaupenda.
Með Long Range 98 kWh drifrafhlöðu og afturdrifi er drægnin skv. WLTP staðli allt að 610 km og með fjórhjóladrifi er drægnin 540 km.
Með Standard Range 75 kWh drifrafhlöðunni og afturdrifi er drægnin einnig frábær eða 440 km og 400 km þegar valið er fjórhjóladrif. Nóg fyrir öll ferðalög og auðvitað ekkert mál í innanbæjarsnattinu.
Eldsnögg hleðsla
Rannsóknir sýna að langflestir eigendur rafbíla hlaða heima en margir einnig á vinnustað. Ford Mustang Mach-E er með 11 kW innbyggða hleðslustýringu sem gerir honum kleift að taka við þriggja fasa hleðslu (AC) hvort sem er heima eða á vinnustað.
Standard Range 75 kWh útfærsluna er hægt að hlaða frá 10% í 80% á 38 mínútum í allt að 115 kW hraðhleðslustöð.
Hlaðinn þægindabúnaði sem m.a. tryggir alltaf heitan bíl
Ford Mustang Mach-E er hlaðinn staðalbúnaði. Framrúða og hliðarspeglar eru upphituð og farþegarými er alltaf heitt með aðstoð forhitara með tímastilli auk þess sem stýri er upphitað og leðurklætt og fjölstillanleg, framsætin eru upphituð.
Mustang Mach-E með Evrópubúnaði og lengri verksmiðjuábyrgð
Ford Mustang Mach-E bílar sem keyptir eru hjá Brimborg eru sérhannaðir fyrir Evrópu með búnaði og gerðaviðurkenningu fyrir Evrópu og uppfylla þannig allar skráningarkröfur á því markaðssvæði.
Leiðsögukerfi með Íslandskorti fylgir Evrópubílum ásamt hleðslukapli með TYPE2 tengi fyrir evrópskar aðstæður.
5 ára verksmiðjuábyrgð er á Ford Mustang Mach-E bílum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu sem keyptir eru hjá Brimborg.
Til sölu núna á netinu á frábæru verði
Ford Mustang Mach-E kostar frá 6.890.000 kr. og er nú þegar til sölu á netinu í Vefsýningarsal Brimborgar
Aðrar umfjallanir
Það viðraði aldeilis vel í gær til bílaskoðunar. Hekla hélt upp á góða veðrið með stórsýningu á nýjum bílum en þeir sýndu glænýjan VW Taigo sem er ansi huggulegur...
Manni nokkrum brá heldur í brún þegar hann kom auga á hugmyndabíla frá Nissan innan um brotajárn á leið í pressuna skammt frá höfuðstöðvum framleiðandans í Tennessee. Upprunalegu hugmyndabílarnir eru nefnilega á leið í bílapressuna.
Á meðan Chevrolet var til sölu hjá Bílabúð Benna var smábíllinn Spark vinsæll meðal kaupenda; lítill snaggaralegur bíll með dágott notagildi. En nú er hann að renna sitt skeið á enda í Bandaríkjunum líka.
Dodge Ram TRX 2022 er einn sá svakalegasti pallbíll sem völ er á í dag. Þess vegna er ekkert grín að missa stjórn á svona ökutæki, eins og bílstjóri nokkur í Kaliforníu komst að á dögunum.