Nýr 2021 Volkswagen T7 Multivan kemur í stað Caravelle
- Volkswagen T7 Multivan MPV skiptir yfir á MQB grunn og bætir við tengitvinnbíltækni
Það er áberandi útlit og nýtt nafn fyrir stærsta fjölnotabílinn frá Volkswagen, vegna þess að VW T7 Multivan hefur verið afhjúpaður í staðinn fyrir T6 Caravelle.
Að utan er nýi Multivan með útlit sem fellur einhvers staðar á milli sviðs Golf og ID rafmagnsgerða VW, með mjóu grilli og LED framljósum sem staðalbúnað, tiltölulega sléttu nefi, hreinum línum í yfirbyggingu og nýrri láréttri hönnun afturljósa.
Mjóum A-bitum er ætlað að bæta yfirsýn fram á við, en stórir gluggar mun skapa rúmgóða innréttingu.
Að innan hefur VW uppfært bílinn í sjö sæta innra skipulag. Nú eru fimm stakir stólar - svo stóri, þungi þriggja sæta bekkurinn hjá Caravelle er ekki lengur til staðar- og stólarnir sjálfir eru allt að 25 prósent léttari en forverinn.
Algjörlega flatt gólfið í Multivan þýðir að nú er hægt að færa borðið allt fram á milli framsætanna. Valfrjálst glerþak er einnig fáanlegt í fyrsta skipti.
Að öðru leyti er Multivan með rafmagns stöðuhemil sem staðalbúnað, en allar gerðir eru eingöngu með DSG sjálfskiptingu og það að losna við gírskiptingu og handfang stöðuhemils hefur skapað enn meira rými.
Það eru 469 lítrar af farangursrými í sjö sæta uppsetningu og 1.844 lítrar þar sem aftasta röðin er fjarlægð.
Multivan kemur í tveimur lengdum, sem eru 4.973 mm og 5.173 mm, og þessar gerðir hafa hámarks burðargetu 3.672 lítra og allt að 4.053 lítra, þegar þær eru með útsýnisþaki.
Þó að T7 Multivan bjóði upp á betri aðstöðu fyrir farþega, er hann ekki eins og er ætlaður til að mynda grundvöll fyrir nýtt úrval af fellihýsum í Kaliforníu-útgáfu eins og gamli bíllinn - þetta mun halda áfram að byggja á T6.1 sendibílnum.
Fremst meðal aflrásanna er tengt tvinnkerfi svipað því sem er að finna í Golf og Passat GTE gerðum.
Uppsetning eHybrid notar 1,4 TSI túrbóvél og rafmótor til að framleiða samanlagt 215 hestöfl, en 13kWst litíumjónarafhlaða mun aðeins skila rafknúnum gangi í um það bil 50 kílómetra.
Öryggisbúnaður fylgir öðrum MQB-gerðum, þar sem boðið er upp á neyðarhemlun í borgarumhverfi, greining á vegaskiltum og akreinaaðstoð, en Multivan er einnig með Car2X, kerfi sem leyfir staðbundin samskipti við önnur ökutæki og upplýsingar vegna aksturs á þjóðvegum, og gerir kleift að vara við mögulegum biðröðum og töfum.
(byggt á frétt á vef Auto Express – myndir VW)
Aðrar umfjallanir
Volvo vörubílar eru þeir vinsælustu á Íslandi árið 2021 og hefur salan aukist meira en 240% það sem af er ári...
Hér er með eindæmum hressilegt myndband þar sem frumlegur bíll er í aðalhlutverki. Bílstjórarnir eru tveir og þeir takast á. Munum að einungis er um einn bíl að ræða og flækjustigið eftir því.
Það getur ekki verið leiðinlegt að fá að búa til rallýbíl í starfsnáminu! Nemar hjá Skoda eru að smíða rallútgáfu af Kamiq með aðstoð akstursíþróttadeildarinnar.
Það er ekki merkilegt að fylgjast með einhverjum þvo bíl, svona alla jafna. En það er hrein unun að horfa á WRC-rallýbíla innan um allar snekkjurnar í Monte Carlo. Jú, það er verið að skola af bílunum og það er bara fínt.