Þrefalt toppsæti hjá Volvo vörubílum frá Velti
Volvo vörubílar eru þeir vinsælustu á Íslandi árið 2021 og hefur salan aukist meira en 240% það sem af er ári og trónir Volvo í þremur toppsætum á árinu. Volvo vörubílar eru mest seldir á heildarmarkaði vörubíla, mest seldir í flokki vörubíla yfir 16 tonn og Volvo FH16 er mest selda einstaka gerðin.
Uppitími skiptir eigendur Volvo vörubíla mestu máli
Ástæðan fyrir framúrskarandi árangri Volvo vörubíla er samspil frábærrar aðstöðu í vel tækjum búinni þjónustumiðstöð Veltis á Hádegismóum 8, einstaklega gott aðgengi fyrir stóra bíla, gæðavörumerki sem er frábært í endursölu og einstök samvinna starfsmanna allra deilda Veltis til að tryggja framúrskarandi þjónustu með allt á einum stað.
Aðrar umfjallanir
Auðvitað var maður farinn að sakna hans! Crazy Rocketman er eðli máls samkvæmt alltaf að gera eitthvað klikkað og það er svo gaman að fylgjast með honum. Úr fjarlægð. Hann er oftar en ekki á ferðinni, fleygiferð, að prófa uppfinningar sínar og nú er það „Steampunk“ þotuhjólið.
Fyrstu Grenadier-jepparnir í forframleiðslu eru nú þegar að renna af línunni í Hambach verksmiðju Ineos. Fjöldaframleiðsla hefst í sumar...
Á þessum degi, 22. nóvember, fyrir 54 árum var hulunni svipt af bíl nokkrum í Stokkhólmi í Svíþjóð. Þetta var Saab 99.
Öll þekkjum vörumerkið Samsung – aðallega fyrir sjónvörp og farsíma, en núna gæti okkur staðið til boða að aka um á bíl frá Samsung.