Hyundai kynnir nýjan og langdrægari KONA EV
Hyundai á Íslandi kynnir nk. laugardag, 12. júní milli kl. 12 og 16, breyttan og langdrægari Kona Electric, sem var á sínum tíma fyrsti rafmagnaði sportjepplingurinn á mörkuðum Evrópu.
Ný ytri hönnun Kona EV býr sem fyrr yfir kraftmiklu og straumlínulöguðu útliti en nýjar línur og breytt ásýnd á nýjum Kona leyna sér ekki í útlitinu.
Þá hefur farþegarýmið einnig verið uppfært með meiri þægindum, meiri búnaði og breyttri framsetningu, svo sem í mæla- og upplýsingaskjám.
Style og Premium á hagstæðara verði
Hyundai Kona EV er sem fyrr fáanlegur í þremur útfærsælum, Comfort, Style og Premium, þar sem nýr Comfort er áfram búinn 39 kWh rafhlöðu sem hefur 289 km drægni og kostar sem fyrr kr. 5.290.000.
Þá má að lokum nefna að verð fyrir nýjan Kona Premium er eitt hundrað þúsund krónum lægra en fyrri gerð bílsins og kostar nú kr. 6.090.000.
Hægt er að kynna sér búnað mismundandi gerða Kona EV á heimasíðu Hyundai á Íslandi við Kauptún í Garðabæ, þar sem boðið verður upp á veitingar á sýningunni á laugardag.
Aðrar umfjallanir
Í gærkvöldi birti Samgöngusafnið í Stóragerði færslu þess efnis að Ford Fiesta XR2i væri kominn á safnið góða og þar með orðinn hluti af því fíneríi sem tilheyrir GTI/Turbó hluta safnsins. Lítum nánar á þennan rúmlega þrítuga 900 kílóa eðalbíl.
Skrifari Bílabloggs á jeppa af minni gerðinni. Fékk hann ekki nýjan en núna var loks komið að því að fara með hann í skoðun eftir um tveggja ára eigu, en kílómetramælirinn sýnir um 53.000 kílómetra.
Lamborghini nýja torfærubílinn sinn – Huracan Sterrato - sérstaklega fyrir torfærur...
Ný kynslóð flaggskips jeppa Jaguar Land Rover er kominn langt í þróunaráætlun sinn fyrir frumsýningu árið 2021. Nú hefur...