Ford mun ekki selja nýja Maverick pallbílinn í Evrópu
Við sögðum nýlega frá því hér á vefnum að Nissan mun ekki koma með nýjan Navara til Evrópu vegna lítillar sölu á pallbílum á þeim markaði.
Núna kemur enn betur ljós að þetta er minnkandi markaður í Evrópu því Ford mun ekki bjóða upp á nýja Maverick pallbíl sinn í Evrópu þar sem eftirspurn eftir slíkum ökutækjum minnkar verulega.
Bílaframleiðandinn frumsýndi Maverick á þriðjudag sem grunngerð pallbíla frá fyrirtækinu í Bandaríkjunum. Byrjunarverðið verður 21.490 dollarar þegar hann kemur í sýningarsali með haustinu.
Ford Maverick Hybrid XLT. Mynd/FORD
Í Evrópu er Ford einn af fáum bílaframleiðendum sem enn bjóða pallbíla. Millistærðar Ranger frá Ford er sem stendur mest seldi pallbíllinn á svæðinu; með sölu upp á 44 prósent í 12.000 á fyrsta ársfjórðungi, að mati JATO Dynamics markaðsrannsakanda.
Ford mun setja á markað nýjan Ranger á næsta ári. Sem hluti af iðnaðarbandalagi við Volkswagen verður smíðuð útgáfa fyrir VW sem tekur við af Amarok.
Eftir endurvakningu fyrir fjórum árum hríðfellur eftirspurn í Evrópu eftir pallbílum þar sem viðskiptavinir kaupa í auknum mæli sportjeppa og „crossover“-bíla.
Innrétting Ford Maverick Lariat. Mynd FORD
Nýi Maverick verður fyrsti Ford sem kemur með tvinnvél sem staðalbúnað, sem búist er við að skili sparneytni sem verður um 5,8 lítrar á 100 km. Bíllinn getur dregið allt að 680 kg með tvinnvélinni, og hann getur dregið allt að 4.000 pund með EcoBoost bensínvélinni.
Þessi nýi pallbíll 279 mm styttri - og um 5.000 dollurum ódýrari en Ranger á Bandaríkjamarkaði.
Maverick situr á sama „unibody“ framhjóladrifna / fjórhjóladrifna C2 grunninum sem liggur til grundvallar Bronco Sport, Escape og Lincoln Corsair.
Fjórhjóladrifinn Ford Maverick með EcoBoost. Mynd: FORD
Hugsaður út frá grunnþörfum viðskiptavina
Í Bandaríkjunum sagði Ford að bíllinn beinist að kaupendum fólksbíla sem og kaupendum sem annars gætu valið meðalstóran pallbíl eða „crossover“. Maverick verður ætlaður yngri kaupendum, að sögn markaðsaðila.
(Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Það var árið 1995 sem Citroën DS var í „aðalhlutverki“ í íslenskri kvikmynd. Aðdáendur Citroën í hinum ýmsu löndum hafa hrósað þeim Friðriki Þór Friðrikssyni og Jim Stark fyrir að heiðra þennan glæsilega bíl.
Ford er reyndar ekki að framleiða radrfina Bronco bíla – að minnsta kosti ekki enn. Hins vegar er möguleiki á að ná sér í rafdrifið tryllitæki í...
Fyrirtækið mun bjóða upp á rafbíla afbrigði af öllum núverandi gerðum, þar á meðal rafmagns Peugeot 408...