- Nýja sérútgáfan er smíðuð til að fagna 20 ára afmæli fjórðu kynslóðar Golf R32
- Þessi útgáfa er 328 hestöfl og verður hægt að panta bílinn í takmarkaðan tíma
Volkswagen hefur svipt hulunni af nýju, sportlegra afbrigði af Golf R sem kallast „20 ára útgáfan“, sem er hönnuð til að minnast upphafs R vörumerkisins fyrir tveimur áratugum. Golf R32 með V6-vél kom á markað árið 2002 og var þá hraðskreiðasti Golf sem farið hafði í framleiðslu. Nú er það VW Golf R 20 með sín 328 hestöfl, sem tekur við sem sá öflugasti.
Vélbúnaðurinn er í grundvallaratriðum sá sami og í „R-Performance“ pakka Golf R, með 2,0 lítra fjögurra strokka vél með forþjöppu undir vélarhlífinni sem keyrir öll fjögur hjólin í gegnum sjö gíra gírkassa með tvöfaldri kúplingu. Hins vegar hefur Volkswagen kreist aukalega 13 hestöfl út úr mótornum, sem er með nýju Emotion Start kerfi sem hækkar snúninginn í 2.500 snúninga á mínútu við gangsetningu.
„20 ára“ merkið og blátt „R“ undirstrika afmælisútgáfuna
Golf R 20 er einnig búinn „R-Performance“ pakkanum (staðalbúnaður), sem inniheldur „torque vectoring“ mismunadrif að aftan og viðbótar „Special“ og „Drift“ akstursstillingar. Þakspoiler og sett af 19 tommu álfelgum eru einnig með „20“ merki á B-bitanum og „20 R“ pollaljós þegar bíllinn er opnaður.
Að innan er Golf R 20 með koltrefjamælaborði, ásamt bláu R-merki á stýri, sportsætum og lyklaborði. Volkswagen hefur ekki gefið upp verðið á sérútgáfunni en bíllinn verður fáanlegur fram á mitt ár 2023 eftir að hann fer í sölu á þessu ári.
(frétt á vef Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Sjálfstýring, ProPilot, CoPilot. Bílaframleiðendur hafa mörg nöfn á nýjum kerfum sem gera handfrjálsan akstur mögulegan, en engir öryggis- eða...
Hvernig í veröldinni er hægt að fá Trabba gamla til að þagna? Öðruvísi en að drepa á honum sko? Jú, það er ein leið til að afmá helsta einkenni Trabantsins.
Ég er enn einu sinni að tala um eftirfarandi grein í tryggingalögunum sem félög og samtök vildu fá breytt enda íþyngjandi fyrir kaupendur notaðra bíla...
Þær amma og amma fóru fyrir fáeinum árum í bíltúr á 650 hestafla Lamborghini. Þær eru svo hrikalega skemmtilegar og skemmta sér svo vel að þetta er alveg ekta sunnudagsbíltúr. Nú skyldi maður ekki kalla allt ömmu sína en ég myndi alveg vilja kalla þessar tvær ömmur mínar.