Langdrægur Ford Mustang Mach-E rafbíll kominn í Brimborg
Fyrsti Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er lentur á Íslandi og kominn í sýningarsal Ford hjá Brimborg til sýnis og reynsluakturs.
Kraftmikill, fjórhjóladrifinn, langdrægur sýningarbíll hjá Brimborg
Sýningarbíllinn er búinn fjórhjóladrifi og 351 hestafla rafmótor sem skilar 660 Nm af togi og kemur bílnum í 100 km hraða á aðeins 5,1 sekúndu.
Hann er búinn 98 kWh drifrafhlöðu sem skilar honum drægni upp á 540 km og kemst því auðveldlega frá Reykjavík til Akureyrar á einni hleðslu.
Goðsögnin rafmögnuð
Það má með sanni segja að blað sé brotið í sögu Ford Mustang sem er goðsögn í bílaheiminum og hefur hingað til aðeins fengist sem tveggja dyra sportbíll. Í fyrsta skipti í 55 ára sögu þessa fræga bílamerkis er ný gerð sett á markað.
Langdrægur ferðarafbíll fyrir alla fjölskylduna í allar ferðir allt árið
Ford Mustang Mach-E er einstakur ferðarafbíll í flokki stærri bíla, rúmir 4,7 metrar að lengd og því feikilega rúmgóður fyrir fimm farþega. Farangursrými að aftan er stórt, 402 lítrar og stækkanlegt með því að fella niður aftursætisbök, að hluta eða öllu leiti.
Að auki er hann með farangursrými að framan (frunk) sem er 100 lítrar sem gefur margvíslega möguleika.
„Ford Mustang Mach-E rafbíllinn kemur á háréttum tíma fyrir orkuskiptin á Íslandi. Smellpassar við íslenskar aðstæður. Langdrægur, fjórhjóladrifinn, rúmgóður ferðarafbíll með jeppalagi og einstaklega mikla drægni á hreinu rafmagni sem kemur allri fjölskyldunni og farangri í einni lotu milli Reykjavíkur og Akureyrar sem er algengt viðmið“ segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar.
Allt að 610 km drægni
Ford Mustang Mach-E fæst í fjórum mismunandi gerðum og með tveimur stærðum af drifrafhlöðu fyrir mismunandi þarfir kaupenda.
Nóg fyrir öll ferðalög og auðvitað ekkert mál í innanbæjarsnattinu.
Eldsnögg hleðsla
Rannsóknir sýna að langflestir eigendur rafbíla hlaða heima en margir einnig á vinnustað. Ford Mustang Mach-E er með 11 kW innbyggða hleðslustýringu sem gerir honum kleift að taka við þriggja fasa hleðslu (AC) hvort sem er heima eða á vinnustað. Þegar á þarf að halda er hægt að hlaða eldsnöggt í hraðhleðslu.
Hlaðinn þægindabúnaði sem m.a. tryggir alltaf heitan bíl
Ford Mustang Mach-E er hlaðinn staðalbúnaði. Framrúða og hliðarspeglar eru upphituð og farþegarými er alltaf heitt með aðstoð forhitara með tímastilli auk þess sem stýri er upphitað og leðurklætt og fjölstillanleg, framsætin eru upphituð. Hljómtækin eru frá B&O með 10 hátölurum, þráðlaus hleðsla fyrir farsíma, stór 15,5" snertiskjár, nálægðarskynjarar, lyklalaust aðgengi, Ford pass og sjálfvirk netuppfærsla hugbúnaðar (OTA) svo fátt eitt sé upptalið.
Mustang Mach-E með Evrópubúnaði og lengri verksmiðjuábyrgð
Ford Mustang Mach-E bílar sem keyptir eru hjá Brimborg eru sérhannaðir fyrir Evrópu með búnaði og gerðaviðurkenningu fyrir Evrópu og uppfylla þannig allar skráningarkröfur á því markaðssvæði.
5 ára verksmiðjuábyrgð er á Ford Mustang Mach-E bílum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu sem keyptir eru hjá Brimborg.
Til sölu núna á netinu á frábæru verði
Ford Mustang Mach-E kostar frá 6.890.000 kr. og er nú þegar til sölu á netinu í Vefsýningarsal Brimborgar.
Aðrar umfjallanir
Skrifari Bílabloggs á jeppa af minni gerðinni. Fékk hann ekki nýjan en núna var loks komið að því að fara með hann í skoðun eftir um tveggja ára eigu, en kílómetramælirinn sýnir um 53.000 kílómetra.
Þetta er í raun ágæt áminnig um að vera vel með á nótunum í umferðinni. Það er víst enn til fólk sem kann ekki almennilega að víkja þegar bíll í forgangsakstri kemur á fleygiferð.
Það er óhætt að segja að Dacia hafi átt sviðið (stóran hluta þess) undanfarna daga í bílaheiminum. Hér er ein frétt í viðbót þar sem segir frá rafknúnum torfærubíl sem er mjög áhugaverð hugmynd!
Tilkynnt hefur verið um bílana sjö á forvalslistanum fyrir bíl ársins 2023 í Evrópu, en sigurvegarinn verður opinberaður í janúar...