VW ID.4 er bíll ársins
Nú liggur fyrir að það var Volkswagen ID.4 sem var valinn „Bíll ársins 2021 á Íslandi”. Alls voru 44 bílar gjaldgengir í valinu að þessu sinni, en aðeins leið lengra á milli valsins vegna faraldurs Covid-19.
Lokaprófun bílanna 12 sem kepptu í úrslitunum fór fram miðvikudaginn 26. maí. Það var hópur bílablaðamanna frá miðlum eins og bilablogg.is, Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, FÍB blaðinu, Viðskiptablaðinu og visir.is. sem tók þátt í þessu lokaprófi og fóru með bílana 12 upp í Hvalfjörð og þar skiptist hópurinn á að prófa bílana.
Flokkur minni fólksbíla
Á myndinni talið frá vinstri: Honda E 716 stig, Toyota Yaris 719 stig, Opel Corsa E 768 stig.
Flokkur stærri fólksbíla
Á myndinni talið frá vinstri: VW ID-3 sem hlaut 780 stig, Peugeot e-2008 sem hlaut 744 stig, Opel Mokka 776 stig.
Flokkur minni jepplinga/jeppa
Á myndinni talið frá vinstri: VW ID-4 sem hlaut 838 stig, MG EHS PHEV 761 stig, Skoda Enyaq EV 787 stig.
Flokkur stærri jepplinga/jeppa
Á myndinni talið frá vinstri: Kia Sorento 761 stig, Ford Explorer 733 stig, LR Defender 776 stig.
VW ID.4 sigraði með nokkrum yfirburðum
Þegar við skoðum niðurstöðurnar úr valinu að þessu sinni sést að Volkswagen ID.4 sigraði með nokkrum yfirburðum, hlaut 838 stig og er því vel að titlinum kominn, en sá sem kom honum næstur var Skoda Enyaq sem hlaut 787 stig.
Frá afhendingu Stálstýrisins í dag: Jóhann Ingi Magnússon tekur hér við verðlaunagripnum úr hendi Finns Thorlacius, en Stálstýrið verður síðan varðveitt í Heklu fram að vali næsta árs. Ljósmynd/Pétur R. Pétursson.
Heiðursfélagi
Sigurður Hreiðar var sæmdur nafnbótinni Heiðursfélagi BÍBB.
Sigurður Hreiðar tekur við nafnbótinni Heiðursfélagi BÍBB. Sigurður byrjaði að skrifa um bíla í febrúar 1961 þannig að liðin eru sextíu ár frá því hann hóf feril sinn.
Aðrar umfjallanir
Að því er fram kemur í dag á vef Automotive News virðist sem framtíð Mitsubishi Motors í Evrópu sé í óvissu í kjölfar athugasemda forstjóra bifreiðafyrirtækisins...
Þetta sá enginn fyrir. Þótt það sé nú „alvöru“ Harley, var það þróað langt frá stjórnendum fyrirtækisins. En í dag er verið að kynna þetta „ólöglega“ verkefni...
Við höfum áður fjallað um fréttir af því að Mitsubishi hafi ráðgert að hætta, eða að minnstakosti að draga úr framboði sínu í Evrópu...
Allt virðist vera að færast í áttina að hreinni orku sem er oft mishrein þegar grannt er skoðað...