Næsta hjól frá Harley er rafhjól
- Þetta sá enginn fyrir. Þótt það sé nú „alvöru“ Harley, var það þróað langt frá stjórnendum fyrirtækisins. En í dag er verið að kynna þetta „ólöglega“ verkefni
Nánast allir þekkja mótorhjólin frá Harley Davidson í Bandaríkjunum, þung og öflug mótorhjól með hávaðasaman „sleggjumótor“. En nýjasta hjólið frá þeim er ekki „mótorhjól“ í þeim skilningi – heldur rafknúið reiðhjól
Harley sendi frá sér fréttatilkynningu á dögunum í tilefni þess að þeir munu brátt kynna þetta rafmagnshjól opinberlega, sem er í dag..
Þeir segja að það hafi verið hannað og að frumgerðin hafi verið smíðuð og prófuð í lítilli aðstöðu langt frá aðalskrifstofunni. En af eigin fólki verksmiðjunnar. Handfylli af fólki sem var með jafn mikið ástríðu fyrir hefðbundin hjól og mótorhjól.
Hins vegar er það í raun aðeins hönnunin sem aðgreinir þetta hjól frá öðrum slíkum.
Breið dekk og öflug grind er svo sannarlega í anda mótorhjólanna.
„Keðjan“ er tennt reim.
Hleðslustig rafhlöðunnar er sýnt á skjá neðst í grindinni.
Flott hönnun á diskabremsunum í framgjörðinni.
„Serial 1“ er tilvísun til fyrstu mótorhjólanna frá Harley.
Rauðu díóðu-afturljósunum er komið fyrir á smekklegan hátt.
„Kemur 16. nóvember 2020“ sögðu þeir hjá Harley í fréttatilkynningunni á dögunum.
Þetta hjól sem kallast Serial 1 er bein tilvísun til allra fyrstu Harley-hjólanna, Serial Number One, frá 1903.
Mótorhjól sem var á svipuðum tíma og þegar Ford T var að koma heiminum á hjólin.
En þótt hjólið hafi verið í raun hannað „utan“ verksmiðjanna þá tók það ekki langan tíma þar til að Serial 1 varða að sérstakri deild hjá Harley Davidson, undir forystu hóps fólks þar sem vöruhönnuðum og markaðssérfræðingum var blandað saman.
Það er engin ástæða fyrir því að Harley Davidson ætti ekki líka að taka þennan þátt alvarlega. Sala rafbíla á heimsvísu endaði í meira en 15 milljörðum dollara á síðasta ári og búist er við að hún aukist um 6 prósent á hverju ári til 2025.
(byggt á vef Harley Davidson og fleiri vefsíðum – myndir Harley)
Aðrar umfjallanir
Allir sem eiga bíl þekkja ventilinn í felgunni sem er notaður til að dæla lofti í dekkið og til að mæla þrýstinginn þegar þess þarf, en hvenær kom hann til sögunnar og hver fann hann upp?
Þann 30. Apríl fagnaði Land Rover 72 ára afmæli þegar Land Rover frumsýndi þrjá forframleiðslubíla, kölluð Series I...
Hvað ætli þessi litli (stækkanlegi) snattari myndi endast lengi í íslenska rokinu? Kannski einhverjar mínútur. Þetta er danskt farartæki svo það er eins gott að fara varlega í að gera grín en iEV Z er sex sinnum minni en hefðbundinn fólksbíll.
Hann virkar alveg hrikalega flottur í þessari undarlegu auglýsingu; Mercedes-AMG SL, bíll sem fyrst kom á markað á sjötta áratug síðustu aldar og er nú „endurfæddur“ segir í auglýsingunni.