Hyundai Tucson PHEV hlýtur góðar viðtökur
Vöxtur í bílasölu hélt áfram í maí, annan mánuðinn í röð hér á landi borið saman við fyrra ár. Nam aukningin í mánuðinum rúmum 140,6% á markaðnum í heild og 229% hjá BL, þar sem 341 fólks- og sendibíll af merkjum fyrirtækisins var nýskráður, þar af 145 nýorkubílar.
Tucson – Leaf - Duster
Hyundai var lang söluhæsta merki BL í maí með alls 107 nýskráningar og er ánægjulegt hve tengiltvinnjepplingurinn Tucson PHEV hlýtur góðar viðtökur viðskiptavina en alls nýskráði BL 25 slíka til einstaklinga og fyrirtækja í mánuðinum auk þess sem um tvö hundruð aðilar hafa látið taka frá fyrir sig bíl úr næstu sendingu. Bíllinn var kynntur í lok maí.
Bílaleigurnar tekið hressilega við sér
Alls voru 777 bílaleigubílar nýskráðir í maí sem er 1.095% aukning frá sama mánuði 2020 og af þeim voru 178 af flestum merkjum sem BL hefur umboð fyrir. Í heild hafa 1.397 bílaleigubílar verið nýskráðir það sem af er ári og af þeim eru 353 af merkjum frá BL.
23,3% aukning orðið í bílakaupum landsmanna
Þess má að lokum geta að 4.709 fólks- og sendibílar voru nýskráðir fyrstu fimm mánuði ársins sem er 23,2% aukning frá sama tímabili 2020. Af þeim voru 1.096 af merkjum sem BL hefur umboð fyrir, eða 23,3%.
Nýskráðir fólks- og sendibílar BL í maí og fyrstu fimm mánuði ársins borið saman við sama tímabil 2020
Aðrar umfjallanir
Frumsýningar bílanna í Formúlu 1 eru afstaðnar og prófanir hafnar. Eitthvað eru sumir bílarnir nú öðruvísi en þeir sem liðin sýndu á sínum tíma. Mestu munar á bíl Red Bull.
Við þekkjum eflaust flest söguna um Henry Ford sem sagði að „þú getur fengið Model T í hvaða lit sem er – svo lengi sem hann er svartur“...
Þessa dagana eru margir að skipta um dekk á bílunum sínum, og oft er gott að vita eitthvað um hvernig dekkin eru...
Hinn nýi Peugeot 408 verður sýndur 22. júní og opinberar kynningarmyndir staðfesta að sögn Auto Express að þetta verði...