Rafbíll Rolls-Royce fær líklega nafnið Silent Shadow

    • Nýja gerðin mun birtast einhvern tímann á þessum áratug

Rolls-Royce skráði á síðasta ári vörumerkið „Silent Shadow“ eða „hljóðláti skugginn“ hjá þýsku einkaleyfastofunni, og líklega verður þetta heiti notað á væntanlegum rafknúnum bíl þeirra sem aðeins notar orku frá rafhlöðum.

image

Í viðtali við Bloomberg sjónvarpið staðfesti forstjóri Rolls, Torsten Müller-Ötvös, að fyrirtækið sé að vinna að sérsmíðuðum rafbíl.

Þó að hann vildi ekki gefa upp áætlaðan komudag, hefur Rolls-Royce áður sagt að rafdrifin gerð myndi koma fyrir lok áratugarins.

image

Silent Shadow nafnið endurómar Silver Shadow eða  Silfurskugga frá árunum 1965-1980. Þrátt fyrir að Rolls-Royce hafi áður útilokað að gera tengitvinnbíl, þá hefur breski bílaframleiðandinn, sem er í þýskri eigu, færst nær fullum rafknúnum ökutækjum um nokkurt skeið.

Á bílasýningunni í Genf 2011 kynnti Rolls Royce rafútgáfu af síðustu kynslóð Phantom að nafni 102EX.

Meira nýlega, eða árið 2016, kynnti fyrirtækið hinn töfrandi framúrstefnulega 103EX hugmyndabíl sem var að fullu rafknúinn.

Þess í stað hefur vörumerkið lengi lofað næstum þöglum akstri.

Reyndar er í auglýsingu Rolls-Royce frá 1958, sem goðsögnin í auglýsingaheiminum David Olgivy bjó til, sérstaklega fjallað um kyrrðuna í bílnum.

(frétt á Autoblog)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is