Alvöru vetrarpróf rafbíla í Noregi
Það var Tesla Model 3 sem kom sá og sigraði í umfangsmikilli „vetrarprófun“ rafbíla í Noregi á dögunum. Að lokum endaði Tesla með hæsta kílómetrafjöldann: 521 kílómetra. Mercedes-Benz EQS varð í öðru sæti.
Athyglisvert var að enginn af bílunum 31 í vetrarprófinu í ár var nálægt uppgefnum WLTP tölum.
Það var norski bílavefurinn Motor og NAF, sem eru samtök bifreiðaeigenda í Noregi (systursamtök FÍB) sem stóðu fyrir þessu prófi en alls voru 31 rafbíll í drægniprófinu. Aðstæður voru breytilegar en það var ekki mjög kalt.
Hér eru bílarnir í kuldanum á leiðinni: Tesla Model 3, næstur þar á eftir er BMW iX xDrive50 og aftastur er Mercedes Benz EQS
Tesla Model 3 Long Range stoppaði með 521 km á kílómetramælinum. Mercedes-Benz EQS stoppaði á 513 km, og BMW iX xDrive50 fór líka 500 km.
Þeir bílar sem lengst fóru stöðvuðust rétt norðan við Kvam.
TILBÚNIR AÐ BYRJA: Fyrsti bíllinn sem fór af stað var Mercedes EQS, síðan BMW iX xDrive50 og Tesla Model 3 LR.
Bílarnir byrjuðu með fullhlaðna rafhlöðu, án forhitunar, frá bílskúr á Vulkan í Osló þar sem hiti yfir nótt er á bilinu 10 til 15 gráður.
Aðrar umfjallanir
Þegar eitthvað sérstakt stendur til í heimi viðskipta, eða þegar til dæmis „litaðir“ föstudagar nálgast þá er oft brugðið á leik, og það gerði bílaumboðið Askja með miðnæturopnun.
Stór, sjö sæta rafmagnsjeppi er í burðarliðnum fyrir Skoda og þessar nýútgefnu teikningar gefa hugmynd um útlitið á þessum væntanlegri keppinaut Kia EV9. Áætlað er að frumsýna bílinn síðar í þessum mánuði sem hugmyndabíll sem kallaður er „Vision 7S“ og mun nýja gerðin vera leiðandi í endurgerðri hönnun fyrirtækisins inn í raföldina.
Samkvæmt yfirlitsfrétt á bílavefnum Autocar ætlar Mini að auka framboð sitt þannig að það nái til tveggja nýrra gerða sportjeppa í mestu...
Hér gefur að líta þær flottustu endurgerðir sem undirritaður hefur séð lengi...