Bíll dagsins: Ford Bronco árgerð 1974
- Ford Bronco árgerð 1974
- Ranger Pakki frá verksmiðju
- Orange „Y“ code litur
- Ginger Ranger sæti frá verksmiðju
- 302-2V vél með sjálfskiptingu
- Vökvastýri
Vinsæll bíll
Ford Bronco var kynntur árið 1966 og breyttist lítið í gegnum árin enda var bíllinn framúrskarandi vinsæll og þótti vel heppnaður í alla staði.
Grjótharður nagli, hagnýtur og einfaldur þjónaði Bronco ákveðnum tilgangi sem jeppi og hann gerði það líka ansi vel.
Orðspor Bronco reis hratt og hátt og varð jeppinn fljótlega einn helsti keppinautur Jeep. Fyrsta kynslóð þessa knáa jeppa þróaði með sér trygga áðdáendur sem gerði kleift að hafa bílinn í framleiðslu allt til ársins 1977.
Eintak í sérflokki
Eintakið sem hér sést var til sölu hjá LMC (Legendary Motor Company) í Kanada fyrir skemmstu. Ég varð aðeins of seinn. Þessi jeppi var smíðaður þann 28. September 1973 og var afhentur nýr fyrsta eiganda sínum hjá Matthews Motors Inc. í Ashwille í Norður-Karólínu.
Bíllinn kom með þessum fallega Orange Y lit og Ginger Ranger sætum. Það gefur bílnum óneitanlega skemmtilega litasamsetningu.
Í vélarsalnum er 302-2V, V8 vél með sjálfskiptingu og 3.50 standard afturöxli.
Kagginn í myndum
Heimild: LMC - Legendary Motors
[Greinin er frá maí 2021]
Aðrar umfjallanir
„Takk fyrir að borga allt saman,“ sagði David Couldhart sposkur á svip við fyrrum liðsfélaga sinn, Mika Häkkinen. Þetta var nú smá grín sem skýrist í meðfylgjandi myndbandi en hlýtt er á milli þeirra og ekki laust við að manni finnist þeir eins og tveir gaurar.
Margt er nú kúnstugt í bílheimum: Hringakstur bíla með hjólhýsi í eftirdragi, ofurlágir bílar og trylltir pallar sem hoppa og skoppa eru þar á meðal.
Nei, hættu nú alveg! Dacia Duster verður að ofursvölum bíl með nýju „kitti“ frá Prior Design. Og verðið kemur á óvart!
Við þekkjum eflaust flest söguna um Henry Ford sem sagði að „þú getur fengið Model T í hvaða lit sem er – svo lengi sem hann er svartur“...