Tesla safnar upplýsingum úr bílum í Kína
- Á sama tíma ræða kínverjar áhyggjur af öryggismálum
BEIJING – Bandaríski rafbílaframleiðandinn Tesla sagði á þriðjudag að þau hefðu komið sér upp gagnagrunni til að safna upplýsingum úr bifreiðum sem þau framleiða og eru notaðar í Kína. Þetta gerist á sama tíma og upplýsingasöfnun bílaframleiðenda vekur vaxandi áhyggjur meðal þeirra sem koma að verndun persónuupplýsinga. Þetta eru upplýsingar sem aflað er með myndavélum og skynjurum í bílunum.
Tesla sagði í færslu á Weibo (kínverska Facebook) að gögn úr öllum framleiddum og seldum bílum á þeirra vegum í Kína yrðu geymd í gagnagrunninum.
Tesla bætti við að það myndi áfram stækka gagnaversnet sitt í Kína. Hlutabréf í félaginu lækkuðu um 0,7% í kjölfarið.
Kína sem er stærsti bílamarkaður í heimi og sá næststærsti fyrir Tesla er að leggja drög að reglum til að tryggja öryggi gagna sem verða til vegna notkunar bifreiða sem safna upplýsingum yfir netið. Gríðarleg aukning í sölu slíkra bíla veldur mönnum áhyggjum er varða friðhelgi einkalífs og þjóðaröryggi.
Starfsfólki kínverskra ríkisfyrirtækja hefur verið sagt að leggja ekki Tesla bílum sínum í eða við stjórnarbyggingar þar sem kínversk stjórnvöld óttast öryggisbrest vegna myndavéla bílanna.
Er þetta haft eftir heimildarmönnum sem Reuters hafði á sínum snærum og hafa þekkingu á málinu.
Grein byggð á Autblog
Aðrar umfjallanir
Hann virkar alveg hrikalega flottur í þessari undarlegu auglýsingu; Mercedes-AMG SL, bíll sem fyrst kom á markað á sjötta áratug síðustu aldar og er nú „endurfæddur“ segir í auglýsingunni.
Hverjir búa til kappakstursbrautirnar? Nær væri að spyrja „hver“, því einungis fjórir menn eru samþykktir af FIA sem brautarhönnuðir og þar af einn sem hanna má brautir fyrir Formúlu 1.
Yaris er fyrsti bíllinn til að takast á við uppfærðar prófunarreglur og sá fyrsti til að hljóta fimm stjörnur í einkunn samkvæmt nýja kerfinu...
Hugmyndabíll á sportjeppagrunni er sýnishorn af framtíðinni: Framtíð sjálfkeyrandi bíla þar sem stjórntæki ökumanns eru nánast falin.