Hverjir búa til kappakstursbrautirnar? Nær væri að spyrja „hver“, því einungis fjórir menn eru samþykktir af FIA sem brautarhönnuðir og þar af einn sem hanna má brautir fyrir Formúlu 1.
Í grein sem birtist hér á síðunni í morgun var minnst á að hönnuður Yas Marina brautarinnar í Abu Dhabi, sem keppt er á í Formúlu 1, væri maður að nafni Hermann Tilke.
Kappakstursbrautahönnuðurinn og ökumaðurinn Hermann Tilke. Mynd/Wikipedia
Það er ekki úr vegi að fræðast ögn um þann mann en hann hefur sannarlega gert eitt og annað í brautarmálum fyrir Formúlu 1 og aðrar akstursíþróttir um heim allan. Hvaða náungi er þetta eiginlega?
Enginn sófasportisti
Það hlýtur að vera æskilegt að maður sem hannar slíkar brautir sé ekki einhver sófasportisti sem ekkert veit um akstursíþróttir, heldur einhver sem hefur aðeins ekið eftir slíkum brautum. Það er ekki nauðsynlegt en það er alla vega ekki verra.
Þjóðverjinn Hermann Tilke hefur einmitt mikla reynslu af akstursíþróttum því sjálfur hefur hann keppt sem ökumaður í nokkrum akstursíþróttagreinum.
Má þar nefna kappakstur ýmiss konar á Nürburgring; VLN endurance racing og 24 Hours Nürburgring.
Einn af fjórum í heiminum
Þeir eru ekki margir sem hafa þá menntun sem þarf til þess ábyrgðarmikla starfs sem hönnun kappakstursbrauta er. Það er eitt að hanna golfvöll á réttan hátt en að hanna kappakstursbraut getur kostað mannslíf, ef ekki er allt 100%. Það er nú stóri munurinn í stórfurðulegum samanburði undirritaðrar á hönnun golfvalla og kappakstursbrauta.
Tilke er einn af fjórum hönnuðum sem fengið hafa viðurkenningu FIA (alþjóðaakstursíþróttasambandsins) til hönnunar á kappakstursbrautum. En hann er samt sá eini sem „má“ hanna brautir fyrir Formúlu 1, samkvæmt því sem fram kemur í þessari grein í blaðinu The Guardian. Það gæti reyndar hafa breyst því þessi grein sem hér er vísað í er frá 2009. Höfum þann fyrirvara á.
En það breytir því ekki að Hermann Tilke er karlinn sem hannaði brautirnar og er fyrirtæki Tilkes fremst allra í heiminum þegar kemur að hönnun kappakstursbrauta.
Aðrar umfjallanir
Hann hefur af mörgum bílnum þefað; af mörgum sætispúðanum hnusað og lyktað af fleiri speglum en meðalmaður horfir í á ævinni. Japaninn Ryonosuke Ino er kallaður „Nef Nissan“ og það er ekki að ástæðulausu!
Það verður að viðurkennast að ef ég ætti það fé sem til þarf væri ég búinn að kaupa þessa kerru. Við erum að tala um rétt tæpa 100 þús. dollara...
Þann 14. júlí verður Hyundai Ioniq 6 frumsýndur í Suður-Kóreu en fyrir fáeinum dögum birti framleiðandinn örstutt myndband þar sem fólksbíllinn er kallaður „Electrified Streamliner“. Það sem sést hefur af bílnum gefur einmitt almennilega straumlínulögun til kynna.
Hér er ein frétt fyrir þá sem hafa áhuga á BMW - því myndum af því sem lítur út fyrir að vera næsta kynslóð BMW 2 Series Coupe hefur veið lekið á netið...