Nýtt rafmagns „rúgbrauð“?
Canoo er fyrirtæki í Bandaríkjunum sem ætlar sér stóra hluti á markaðnum. Þeir hafa kynnt nokkrar vægast sagt skemmtilegar hugmyndir og eru vongóðir varðandi framleiðsluna.
Ökutæki þessa fyrirtækis byggja á hjólabretta formuðum grunni sem hýsir rafhlöður og mótora.
Lífstílsbíllinn sem fyrirtækið vinnur að mun kosta frá 4,3 milljónum króna en sá bíll er nokkursskonar einrýmisbíll en lítur út að utan eins og „rúgbrauð“. Bílarnir verða boðnir í Delivery, Base og Premium útgáfum. Verðið er áætlað upp að 6,2 milljónum króna.
Canoo rafmagns pallbíll
Við höfum áður sagt frá Canoo pallbílnum hér á Bílabloggi. Sá bíll er byggður á sama grunni og ofangreindur og verður á svipuðu verði og „rúgbrauðið“. Allt þetta segir þó fyrirtækið að sé háð breytingum enda kalla þeir eftir forpöntunum með innáborgun sem þeir hyggjast nota til að dekka framleiðslukostnaðinn. Canoo kynnir einnig nýstárlegan sendibíl.
Reyndar er þetta áhugaverða fyrirtæki til skoðunar hjá bandaríska verðbréfaeftirlitinu. Rannsóknin er sögð eiga að varpa ljósi á samrunafyrirtækið ásamt því að skoða viðskiptamódel Canoo, tekjur og tekjustefnu. Eftirlitsaðilar taka þó skýrt fram að aðeins sé um rannsókn að ræða og alls ekki verið að fullyrða neitt með henni.
Miðað við nýstárlega og skemmtilega hönnun skulum við vona að framleiðslan eigi eftir að líta dagsins ljós.
„Rúgbrauð“
Sendibíllinn
Grein byggð á frétt Autoblog.
Aðrar umfjallanir
„The Gooseneck Trailer“, hressileg viðbót við Volkswagen bjölluna en virðist þó ekki hafa náð vinsældum á réttum tíma því ef rétt reynist hafa aðeins tvö eintök varðveist.
Leyfið mér að kynna Jimmy. Hann býr í Teslunni sinni og það hefur hann gert síðan 25. febrúar á þessu ári. Jimmy ætlar að búa í bílnum þangað til 25. febrúar 2022. Hann opnar líf sitt upp á gátt en fáir hafa sýnt því áhuga.
Cyan Racing er nafnið á keppnisliði Volvo. Þeir settu saman eitt stykki ofurbíl en það er Volvo P1800 Resto Mod bíll sem gerir bara meira en að líta vel út...