Toyota forsýnir bZ4X: rafdrifinn sportjeppa sem kemur í sölu 2022
- Toyota fer í samkeppni við VW og Tesla með þessum rafbíl
- Sportjeppar munu skipta sköpum fyrir Evrópu þar sem sala á gerðum með rafhlöðum tekur við sér
Toyota voru fljótir að koma með blendingsbíla (hybrid), en japanska fyrirtækið hefur farið sér tiltölulega hægt við að kynna gerðir sem aðeins nota rafhlöður í framboði sínu.
Þessi sportjeppi er forsýndur í Shanghai sem hugmyndabíll og verður sá fyrsti af sjö bZ rafbílum sem munu birtast fram til ársins 2025 sem hluti af 15 gerðum bíla sem aðeins nota rafhlöður í þessari sókn Toyota.
Bíllinn mun vera byggður á e-TNGA, fullrafmögnuðu útgáfunni af grunni fyrirtækisins, og hann hefur verið þróaður í tengslum við Subaru, sem sagt er að hafi haft sitt að segja varðandi fjórhjóladrifskerfi bílsins.
Í stað þess að vera með hefbundið grill er framhlið bZ4X með skynjara, ljós og loftaflfræðilega þætti í áberandi köntuðu formi.
Toyota leggur áherslu á „mannlega miðju“ eiginleika bZ4X hugmyndabílsins sem mun skipta sköpum við að hjálpa bílaframleiðandanum að ná í keppinauta á borð við Volkswagen Group sem eru á undan í því að knýja rafmagn sitt.
Kemur í sölu um mitt ár 2022
Framleiðsluútgáfan af sportjeppanum mun fara í sölu um mitt ár 2022 og miðast við lykilmarkaði í Evrópu og Kína þar sem sala á rafbílum vex hratt. Bíllinn verður keppinautur Tesla Model Y, VW ID4 og Hyundai Ioniq 5.
Þróaður með Subaru
Bíllinn var þróaður sameiginlega með Subaru, sem er í 20 prósent eigu Toyota. Það nýtir fjórhjóladrifstækni Subaru til að bjóða upp á það sem Toyota fullyrðir að sé „bestur í flokki með bíla mikla fjórhjóladrifsgetu.“
Subaru hefur sagt að það muni setja á markað sína eigin útgáfu af bílnum á næstu fimm árum.
BZ4X er með kantað yfirborð, langt hjólhaf og stutt yfirhengi.
Nýr grunnur / undirmerki
Stafirnir „bZ“ í heiti hugmyndarinnar standa fyrir „handan við núllið“ (beyond zero), sem styrkja nafn bílaframleiðandans fyrir metnað sinn fyrir árið 2050 til að ná kolefnishlutleysi og fara út fyrir núll umhverfisáhrif til að hafa nettó jákvæð áhrif á alþjóðlegt umhverfi og samfélag.
Sjö gerðir kynntar árið 2025
Sjö tegundir Toyota verða kynntar árið 2025 undir undirmerkinu „Beyond Zero“. Lexus mun einnig nota e-TNGA vettvanginn.
Í Evrópu verður bZ4X ein af 10 bifreiðum án losunar sem Toyota og Lexus ætla að setja á markað fyrir árið 2025.
Það ár, sér Toyota fyrir sér blöndu drifrása í Evrópu með meira en 70 prósent fullum blendingum, meira en 10 prósent tengitvinnbíla og meira en 10 prósent núlllosunargerðum - bæði rafbílar og vetnisbíla.
Ný nöfn til að undirstrika „núlllosun“
Með bZ undirflokknum fylgir Toyota öðrum bílaframleiðendum sem eru að búa til ný nöfn til að bera kennsl á bíla með núllosun.
Stýri-með-vír-kerfi hugmyndabílsins bZ4X sleppir hinu hefðbundna, hringlaga stýri og kemur í staðinn með „okstýri“.
Ný tækni stýringar
Toyota segir að bZ4X framleiðslugerðin verði með fyrstu samsetningu í heiminum á „okstýri“ og nýju og stýribúnaðarkerfi.
„Stýri-með-vír“ sleppir einnig hefðbundnu, hringlaga stýri og kemur í staðinn fyrir einstaklega lagað stýrisok og nýja aðlögunarstýringu. Stýrið minnir meira á flugvélarstýri en stýri í bíl
Tæknin útilokar þörfina fyrir ökumanninn að hreyfa hendur sínar um stýrið þegar hann beygir og bæta við akstursgæði bílsins, sagði Toyota.
Hugmyndabíllinn er með áberandi brattri afturrúðu.
Útlitsáhrif frá RAV 4
Ytri útfærsla bZ4X sækir í nýja hönnunarmálið fyrir rafknúna bíla sem Toyota kynnti árið 2019. Það er með kantað yfirborð, bratta hallandi afturrúðu og mjó aðalljós.
Rými fyrir fætur í bZ4X er svipað og í stóra lúxusbílnum Lexus LS, sagði Toyota.
Framendinn er með lágmarksop og er að mestu með slétt yfirbragð til að undistrika það að það er engin hefðbundinn brunamótor í þessum bíl.
Hleðslutengi er sett fyrir aftan framhjólið. Hjólaskálarnir eru undirstrikaðir með svörtum köntum og afturendinn fær umlykjandi lýsingu.
Að innan er stór stafrænn skjár áberandi en mælaborðið sjálft er lágt og innfellt frá stýrinu sem er í sama stíl og í flugvélum sem skagar út í átt að ökumanninum. Toyota sagði að þetta skipulag hjálpi til við að skapa tilfinningu fyrir opnu rými í og bæta sýnileika.
„Gírskiptingar“ eru líkt og í mörgum bílum í dag í þessum „snúningsrofa“.
Vistvæn efni eru mikið notuð í þessum nýja bíla.
„b Z“ (handan við núllið) í heiti bílsins undirstrikar „núlllosunaráætlun“ Toyota.
(byggt á vefsíðu Toyota, Automotive News og Auto Express – myndir frá Toyota).
Aðrar umfjallanir
Jon Winding-Sørensen segir frá því á vef sínum bilnorge.no að Giovanni Rizzo hafi sagt sér hvað hann hafði verið að gera síðan hann yfirgaf Peugeot...
Orðrómur er upp um að nokkrir bílaframleiðendur hafi áhuga á að fara í samstarf við Red Bull í Formúlu 1...
Ekki er langt síðan hér á Bílabloggi birtist grein um óheppileg nöfn á tegundum bíla. Það getur verið áhugavert að rýna í öll þessi nöfn...
Þetta er stórt ár fyrir jeppa og við meinum það bókstaflega, segja þeir hjá Autoblog, sem birtu þessa frétt á vefsvæði sínu. Ekki aðeins er Jeep...