Innsendar myndir frá Úkraínu
Einn af lesendum Bílabloggsins Hafliði Birgir Ísólfsson sendi okkur myndir af gömlum bílum í Úkraínu sem urðu á vegi hans þar.
„Gömlu bílarnir eru allir rússneskir og misfallegir en eiga allir það sameiginlegt að rúlla af gömlum vana“ segir Hafliði.
Hér koma myndirnar og það væri gaman ef lesendur gætu nefnt bíltegundir, árgerðina og fleiri upplýsingar um þá. Eins konar Páskaleikur en verðlaunin eru bara montrétturinn fyrir þá sem vita eða giska á allt rétt.
Við svindlum þó aðeins því bíltegundin sem sést á síðustu 4 myndunum er skv. Hafliða og lesa má á bílnum:
Mér finnst framendinn líkjast Renault Fuego og afturendinn minnir á Lada Samara sem búið er að stytta, ég er ekki viss um árgerð.“ Hver er árgerðin, veit einhver það?
Lesendum er alltaf velkomið að senda okkur myndefni og óska eftir umfjöllun um hvaðeina sem varðar bíla og það verður nær örugglega birt.
Gleðilega Páska!
Aðrar umfjallanir
Ekki myndi maður fyrir sitt litla líf hætta sér í umfjöllun um hvort kynið sé betra í því að stjórna ökutæki: karlar eða konur. Það er ekki umræða mér að skapi enda tek ég ekki þátt í henni. Eftir sem áður má auðvitað skemmta sér við að fylgjast með öðrum ræða þessi mál.
Það er ekki að ástæðulausu sem eigendur Tesla Plaid ættu hreinlega að elska umferðarljós. Það er að segja ef þeir eru fremstir á rauðu ljósi. Þetta örstutta myndband segir allt sem segja þarf um það.
Citroën hefur verið í fararbroddi tækninýjunga í bílgreininni alla tíð í yfir 100 ára sögu sinni og býðst nú með 7 ára víðtækri verksmiðjuábyrgð á nýjum fólksbílum og sendibílum auk 8 ára...