Hyundai kynnir nýjan i20, handhafa Gullna stýrisins
Hyundai á Íslandi kynnir nk. laugardag milli kl. 12 og 16 nýjan og endurhannaðan i20 sem tvívegis hefur unnið Gullna stýrið hjá Auto Bild, nú síðast í nóvember síðastliðnum í flokki bíla sem kosta undir 25 þúsund evrum á Evrópumarkaði.
Meiri öryggis- og þægindabúnaður
Tæknilega er nýr Hyundai i20 búinn meiri og betri þæginda- og öryggisbúnaði en áður og ennfremur sé miðað við sambærilega bíla af öðrum tegundum í sama stærðar- og verðflokki.
Þar á meðal eru aukin öryggiskerfi sem styðja á margvíslegan hátt við öruggari akstur í umferðinni en veita einnig þægilega og örugga aðstoð þegar leggja þarf bílnum í stæði.
Einnig má nefna nýjan rúmlega 10“ upplýsingasnertiskjá í farþegarýmingu, þráðlausa símahleðslu, lykillaust aðgengi, aukið útsýni úr farþegarýminu, val um tvílitar útgáfur bílsins og fleira sem dómnefnd Auto Bild nefndi meðal annars sem dæmi um þá miklu alúð við smáatriðin sem Hyundai hefði lagt í hönnun hins nýja i20.
Ítarlegar upplýsingar á vefnum
Á vef Hyundai á Íslandi, hyundai.is, eru allar nánari upplýsingar að finna um nýjan Hyundai i20, ríkulegan staðalbúnað bílsins ásamt úrvali aukabúnaðar sem hægt er að velja með nýja bílnum.
Aðrar umfjallanir
Kia kynnti nýtt útlit á Sportage fyrir Ameríkumarkað fyrr á þessu ári. Nú hefur Kia hannað aðra og minni útgáfu, sérstaklega...
Þjóðverjar hafa verið duglegir í bílaframleiðslu. Með sínar sléttu beinu hraðbrautir frá því um miðja síðustu öld hafa þeir smíðað bíla sem hannaðir eru til að límast við þessa vegi.
Eða hvað? Nei, í raun og veru er erfitt að sjá afleiðingarnar fyrir þegar ótrúlega margt fer úrskeiðis á sama tíma. Hér er dæmi um samansafn minniháttar mistaka sem höfðu meiriháttar afleiðingar. Þetta gerðist í Minnesota í síðustu viku.
Hver einasta mínúta hinnar mögnuðu Goodwood Festival of Speed er í beinni útsendingu sem horfa má á hér, frá deginum í dag, 23. júní - 26. júní. Fari það nógu hratt þá er það hér!