EV eða PHEV? Sá á kvölina sem á völina.
Það eru til ýmsar útgáfur af bílum sem eru með rafmótorum og stundum eru illskiljanlegar skammstafanir viðloðandi þá. Reynum að átta okkur aðeins á þessum skammstöfunum í vonandi ekki allt of löngu máli.
EV eða Electric Vehicle er bíll sem er knúinn áfram með rafmagni; svokallaður rafbíll.
BEV eða Battery Electric Vehicle er líka rafbíll sem tekur eingöngu orku frá rafgeymum en þetta er skrifað svona til aðgreiningar frá bílum sem hafa tvo orkugjafa og tvo mótora.
Þetta er gert til að ná niður eldsneytiseyðslu (sem þýðir minni mengun) og/eða afköstum.
PHEV stendur fyrir Plug-in Hybrid Electric Vehicle sem eru svokallaðir tengi- eða tengitvinnbílar. Hægt er að hlaða rafgeyma í tengitvinnbílum með því að stinga þeim í samband við rafmagn með snúru eins og 100% rafbílum. En þetta er meginmunurinn á tengitvinnbíl og tvinnbíl.
Tvinn- og tengitvinnbílar eiga það sameiginlegt að geta verið drifnir eingöngu af rafmótorum (þá er brunamótorinn eingöngu til að drífa rafal), bruna- og rafmótor sem vinna alltaf saman eða bruna- og rafmótor sem geta bæði unnið saman eða í sitt hvoru lagi.
Vonandi eru lesendur einhverju nær.
Aðrar umfjallanir
Í febrúar voru 618 fólks- og sendibílar nýskráðir hér á landi. Þar af voru 178 af merkjum sem BL hefur umboð fyrir og var markaðshlutdeild...
Ég er enn einu sinni að tala um eftirfarandi grein í tryggingalögunum sem félög og samtök vildu fá breytt enda íþyngjandi fyrir kaupendur notaðra bíla...
Hekla bætir við sig hlutdeild og heldur toppstöðu sinni í sölu vistvænna bifreiða...
Sýningarsalir Polestar eru ekki hefðbundnir. Það er verið að útbúa einn slíkan hér og þar er allt gert eftir kúnstarinnar reglum. Tónlistarkonan Lisa Nordströn er eins konar Hildur Guðnadóttir Svíanna og hún hefur skapað áhugaverðan hljóðheim fyrir sýningarsalina.