Toyota fór fram úr VW og varð númer 1 í bílasölu á heimsvísu árið 2020
Toyota fór fram úr Volkswagen Group og var söluhæsti bílaframleiðandi heims árið 2020 þar sem eftirspurnin sem orsakaðist af heimsfaraldri kórónavírus kom harðar niður á VW.
Sala VW Group á heimsvísu minnkaði um 15 prósent og var 9,31 milljónir bíla, sagði bílaframleiðandinn 13. janúar. Tala VW innifelur sölu á vörumerkjum VW, Audi, Porsche, Skoda og Seat, auk Scania og MAN þungaflutningabíla.
Umfang sölutaps bílaframleiðandans réðst að mestu leyti á þeima svæðum sem urðu fyrir af áhrifum af völdum kórónavírus.
Toyota hefur aftur á móti meiri viðveru í Bandaríkjunum þar sem heildarsala bíla dróst saman um 15 prósent árið 2020. Þótt Bandaríkin séu með flest COVID-19 dauðsföll og tilfelli, hefur það ekki valdið eins miklum lokunum og í Evrópu.
Hér bíða nýir bílar frá Toyota þess að komast í hendur nýrra kaupenda.
Herbert Diess forstjóri VW Group hóf frumkvæðisbreytingu eftir að hann tók við toppstarfinu árið 2018 til að einbeita sér að því að lyfta arðsemi frekar en að elta söluaukningu. Söluávöxtun VW hefur verið eftirbátur Toyota í mörg ár og lægð á markaði vegna heimsfaraldursins fyrir ári síðan afhjúpaði tiltölulega háan kostnað VW.
Þrýstingur VW á að framleiða fleiri rafknúnin ökutæki ætti að leiða til söluaukningar í ár, en langvarandi lokanir á markaði og lokun sýningarsala á innanlandsmarkaði mun halda áfram að hafa slæm áhrif, sagði einn sérfræðinganna, Yoshiaki Kawano.
Kawano sagði að Toyota muni halda áfram að njóta mikillar sölu á kjarnamörkuðum sínum í Japan og Bandaríkjunum. Í Kína, stærsta bílamarkaði heims og stærsta markaði VW, ætti fyrirtækinu „ganga vel“ með því að koma fram með fleiri rafbíla og sportjeppa í takt við staðbundna eftirspurn, sagði hann.
(Bloomberg og Reuters)
Aðrar umfjallanir
Þetta er líklega dæmigert dæmi um nokkuð sem á „ekki að prófa heima“ - níu bílar hliðarspegil við hliðarspegil í flottum dansi á brautinni er sannarlega ekki á allra færi.
Nú gefum við annað eintak af bókinni Bílamenning eftir Örn Sigurðsson. Forlagið leggur til nokkur eintök af þessari fínu bók og hana getið þið eignast með því að taka þátt í smá sprelli hér. Fróðlegu sprelli. Viltu vera með?
Maður að nafni Jerry Naumann kann því vel að sjá allt á hvolfi. Hann útbjó bíl, GMC Rally van frá árinu 1984, þannig að hann er á hvolfi og er hægt að aka þeim bíl - öðrum vegfarendum til furðu.
Stytta þurfti akstursleið dagsins í Dakar rallinu um heila 100 kílómetra því það rigndi svo mikið! Og ég sem hélt að þarna væri bara brakandi eyðimerkurþurrkur. En nei, þannig var það víst ekki í hluta Al Artawiyah eldsnemma í morgun.