Nú gefum við annað eintak af bókinni Bílamenning eftir Örn Sigurðsson. Forlagið leggur til nokkur eintök af þessari fínu bók og hana getið þið eignast með því að taka þátt í smá sprelli hér. Fróðlegu sprelli.
Spurt er hvort þú, lesandi góður, munir eftir Hallærisplaninu. Maður þarf nú ekkert að vera orðinn að hálfgildings risaeðlu til að muna eftir því. Eða ef svo er þá er undirrituð orðin býsna gömul.
Nema hvað! Nafnið „Hallærisplanið“ kemur fyrst fyrir (eftir því sem ég fæ best séð) í dagblaðinu Vísi í janúar árið 1967. Það var nú ekki í svo skemmtilegu samhengi enda um flúskur og fólskubrögð manna í millum að ræða. Lögreglan mætti á staðinn og birtist klausa um málið í blaðinu.
Bútur úr klausunni frá 1967 en til að lesa meira er má smella hér.
En þetta áður vinsæla bílastæði, þar sem nú er Ingólfstorg, átti sér nú mun skemmtilegri hlið en að vera einhver samkomustaður slagsmálahunda og áflogaseggja. Þetta var auðvitað vinsæll viðkomustaður á „rúntinum“ sem var og hét. Töffarar á tryllitækjum sýndu sig og sáu aðra og í minningunni var þetta alltaf eins og bíla- eða öllu heldur vélhjólasýning þarna á Hallærisplaninu.
„Myndin var tekin á sólbjörtum sumardegi árið 1949 og umferðin er umtalsverð, enda miðborg Reykjavíkur mikilvæg miðstöð stjórnsýslu og viðskipta. Hér eru bandarískir og breskir bílar mest áberandi,“ segir í bókinni Bílamenning um þessa prýðilegu mynd.
Nú langar okkur, kæru lesendur, að spyrja hvort þið eigið minningar, myndir eða sögustubb sem tengja má Hallærisplaninu? Ef þú vilt eignast eintak af bókinni Bílamenning vertu þá með í leiknum!
Svona eru leikreglurnar og nafnið þitt er komið pottinn ef þú fylgir eftirfarandi:
Aðrar umfjallanir
Það er með ólíkindum að til sé yfirgefið bílumboð þar sem „nýir“ bílar hafa staðið óhreyfðir síðan árið 1974. Þetta eru Toyotur og standa þær margar enn eins og þeim var stillt upp í sýningarsalnum fyrir að verða fimmtíu árum.
Brimborg kynnir í forsölu Mazda CX-60 PHEV, nýjan hágæða jeppa, frá japanska bílaframleiðandanum Mazda Motor Corporation...
Af nógu er að taka hvað miheppnuð aprílgöbb snertir. Meira að segja bílatengd göbb geta algjörlega misheppnast. Lítum á nokkur vandræðalega vond frá síðustu árum.
Kapphlaupið í rafvæðingu hefur að mestu farið fram hjá pallbílamarkaðinum hingað til, en það er að breytast með tilkomu Maxus T90EV, fyrsta rafknúna pallbílsins sem kemur í sölu fyrir Bretlandsmarkað.