Hvað varð um flóðabílana sem komu 1987 og 1988?
Flóðabíll er bíll sem vatn hefur flætt um eða inn í eða fyllst af vatni. Það þykir skárra ef vatnið er ferskvatn en verra ef það er sjór eða klóak. Að sjálfsögðu er best að það fari bara ekkert vatn inn í bílinn.
Subaru var ein gerðin af bílunum sem kallaðir voru „flóðabílar"
Áhrifin af þessu illviðri á Íslandi var innflutningur á bílum seinna það ár og árið eftir sem urðu flóðum að bráð og voru kallaðir flóðabílar. Sá bílainnflutningur olli öðrum stormi sem fór að mestu fram í fjölmiðlum á þeim tíma.
Sennilega voru fyrstu bílarnir Mitsubishi fluttir inn af umboðinu Heklu. Þeir komu frá Drammen í Noregi. Þeir fengust með árs verksmiðjuábyrgð og afslætti þannig að þeir kostuðu 65 til 70% af verði samskonar bíla sem höfðu ekki lent í flóði. Þetta áttu að verða 362 bílar þegar allir voru komnir til landsins. Það má lesa meira um þessa bíla hér.
Hvernig gekk að fá eitthvað út úr ábyrgðinni þegar eitthvað bilaði á ábyrgðartímanum er mér ókunnugt um. Undirritaður vann á þjónustuverkstæði fyrir Subaru og var okkur bannað að þjónusta flóðabílana.
Daihatsu Charade árgerð 1988.
Næst komu rúmlega 100 bílar sem voru Mazda 626 og Daihatsu Charade. Fluttir inn af sömu aðilum og Subaru bílarnir frá Drammen í gegnum Holland.
Hér fyrir neðan eru tenglar inn á blaðagreinar frá 1988.
En hvað varð svo um þessa bíla? Þeir eru ekki auðrekjanlegir enda engin merking í skráningarskírteini og þá væntanlega ekki ökutækjaskrá.
Mazda 626.
Sennilega eru flestir bílar af þessum tegundum, týpum og árgerðum orðnir ónýtir í dag hvort sem þeir eru flóðabílar eða ekki. En hvað segja lesendur, áttuð þið flóðabíl og hver var ykkar reynsla?
En það má reikna með því að þeir hafi ryðgað fyrr og meira en aðrir bílar sömu tegunda. Það eru ýmis rými í yfirbyggingu bíla sem geta fyllst af vatni í flóði. Venjulega getur regnvatn runnið í gegnum þessi rými en stoppar ekki þar. Þó bíllinn sé þrifinn og þurrkaður dugar það ekki því það er ekkert aðgengi í sumum tilfellum að þessum rýmum til að skola út salt pækil sem gæti leynst þar. Að úða ryðvörn yfir ryðið sem gæti verið farið að myndast og saltið er mögulega tímasóun.
Rafkerfi sem lendir í vatninu er oftast ónýtt. Drif- og hjólalegur skemmast. En þetta kemur yfirleitt snemma í ljós.
Þessir bílar voru með frekar einföldu rafkerfi, lítið eða ekkert af tölvum. Hefði þetta gerst síðastliðinn október væru bílarnir nær gjör ónýtir því að það er svo mikið af tölvum og skynjurum í bílum í dag.
Enn verra ef bíllinn er rafbíll og fer á kaf í vatn, það verður ekki þess virði að reyna að gera við rafbíl og þú mátt ekki nota hlutina sem varahluti í aðra bíla.
Það hafa verið fluttir inn flóðabílar oft síðan þetta var. Ég hef séð alls konar vinnubrögð í kringum slíka bíla. Allt frá því að bara þrífa bílinn og svo setja hann beint í sölu. Yfir í það að skoða hve hátt vatnið hefur náð, skipt um allar tölvur sem voru í vatni, skipt um allar olíur og feiti þar sem það er hægt, allt hreinsað og þurrkað og bíllinn tékkaður í tölvu til að sjá hvort allt sé í lagi.
[Greinin birtist fyrst í janúar 2021]
Aðrar umfjallanir
Volvo Cars hefur kynnt ýmsar uppfærslur fyrir allar rafknúnar XC40 Recharge og C40 Recharge gerðir sínar...
Hér er hægt að sjá myndband þar sem Max Verstappen keyrir eftir Bahrain International Circuit á RB16B í Codemasters F1 frá 2021. Það er mjög áhugavert að maðurinn virðist aldrei blikka augunum! Er það trix? Hafa augun galopin og vel loftræst?
Audi hefur búið til flotta hugmynd af „roadster“ með rafmagni, sem er með breytilegt hjólhaf sem breytist...
240 tonna námuflutningabíll er um það bil að vera búinn 1,4 megavattstunda (MWst) frumgerð rafhlöðukerfis sem hægt er svo að hlaða á ný á 30 mínútum...