Nýtt lógó Kia afhjúpað sem hluti af nýjum áætlunum
- Nýtt merki Kia-fyrirtækisins þegar það heldur inn í nýja tíma með mikla áherslu á rafbíla
Kia hefur opinberað glænýtt lógó sem hluti af víðtækri endurskoðun sem mun sjá áður kóreskt merki, sem áður var meira miðað á hagkvæmni og sparnað kynna sig fyrir bílakaupendum sem meira metnaðarfullt og leiðandi í bílatækni.
Stóra endurnýjun alls vörumerkisins er hluti af endurskipulagningaráætlun fyrirtækisins ‘Plan S’ árið 2020, þar sem fyrirtækið ætlar að framleiða 11 mismunandi rafmagns gerðir árið 2025.
Nýja merkið, sem kemur í stað eldra sporöskjulaga merkis, á að töfra fram hugsanir um „samhverfu og hrynjandi,“ enda mjög stílfærð útkoma á nafni Kia.
„Nýja merki Kia táknar skuldbindingu fyrirtækisins til að verða táknmynd fyrir breytingar og nýsköpun,“ sagði Ho Sung Song, forseti og framkvæmdastjóri Kia.
Kynningu á nýja lógóinu verður fljótt fylgt eftir með áþreifanlegri sýningu á því hvað ímynd Kia á nýja vörumerkið snýst um þann 15. janúar þegar það mun leiða í ljós hvernig ný ásýnd þess mun eiga við framtíðargerðir.
Árið 2021 mun vörumerkið setja á markað flaggskip rafbíla sinna, sem verður coupe-sportjeppi með mjúkar línur, sem notar nýjan grunn sem kallast E-GMP. Innan fyrirtækisins er gerðin þekkt sem Kia CV, og það mun hafa „um 480 km“ svið og bjóða upp á „undir 20 mínútna endurhleðslutíma“, en allra fljótasta útgáfan af komandi bíl vörumerkisins mun ná frá 0- 100 km/klst á undir þremur sekúndum.
(Frétt á Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Nissan mun kynna nýjan lítinn rafmagns-sportjeppa á næsta ári sem þeir nefna Sakura. En 3,4 metra langir borgarbílar eru...
Það er ekki sama hvernig hjólbarðar eru geymdir. Það skiptir máli hvernig er gengið frá þeim fyrir geymslu og hvar þeim er komið fyrir...
Verkstæðisuppákomur vikunnar eru með líflegasta móti, alla vega í Norður-Ameríku. Þegar komið var með F-150 pallbíl á verkstæði nokkurt kom í ljós að hæna sat á helst til stóru priki, þ.e. á afturöxlinum. Þar hafði hún verið alla bílferðina eða heila 32 kílómetra. Vikuskammturinn af vitleysu er hér!
Orðrómur er upp um að nokkrir bílaframleiðendur hafi áhuga á að fara í samstarf við Red Bull í Formúlu 1...