Toyota skrásetur vörumerkið „Grand Highlander“
- Bendir til þess að stærri útgáfa af bílnum sé væntanleg
Við sögðum frá því hér fyrir nokkrum vikum að Toyota á Íslandi fær glæsilega viðbót í vörulínuna núna í janúar 2021 þegar Toyota Highlander verður kynntur í fyrsta sinn í V-Evrópu.
Þessi bíll hefur notið mikilla vinsælda víða um heim frá því hann kom fyrst á markað árið 2000, ekki síst í Bandaríkjunum. Highlander er stór sportjeppi með góða aksturseiginleika og mikið innanrými.
Er stærri útgáfa á leiðinni?
Það lítur út fyrir að Toyota sé að búa sig undir að kynna stærri útgáfu af Highlander, þar sem fyrirtækið skrásetti nýlega vörumerkið „Grand Highlander“ eða nýtt nafn í Bandaríkjunum og Kanada.
Notandi á vefsíðunni GR86.org uppgötvaði þessa nýju skráningu. Toyota hefur enn ekki tilkynnt um smáatriði um Grand Highlander en líklega er það stærri Highlander með meira pláss fyrir farþega í þriðju sætaröð og stærra farmrými en venjulegur Highlander.
Sa,kvæmt umsögnum á erlendum bílavefsíðum er stærri Grand Highlander af hinu góða, þar sem venjulegur Highlander þarf örugglega meira pláss í þriðju röðinni. Það hefur aðeins 703 mm fótarými í þriðju röð, en einn helsti keppinautur hans á Bandaríkjamarkaði, Honda Pilot, hefur 810 mm. Highlander hefur einnig aðeins 453 lítra af farmrými þegar þriðja röðin er uppi borið saman við 523 lítra í Pilot.
Aðrar umfjallanir
Um nokkru síðan hringdi vinur minn einn í mig til að ræða bílamál. Hann er svona kall eins og ég, síðmiðaldra, í tveggja manna fjölskyldu, börnin flogin og...
Við sögðum frá því í október að pólskt sprotafyrirtæki væri að skipuleggja innlenda framleiðslu rafbíla, en fjögur pólsk orkufyrirtæki hafa sameinast um að koma...
Þjóðverjar hafa verið duglegir í bílaframleiðslu. Með sínar sléttu beinu hraðbrautir frá því um miðja síðustu öld hafa þeir smíðað bíla sem hannaðir eru til að límast við þessa vegi.
Pontiac Firebird er einn ástsælasti sportari sem framleiddur hefur verið í Bandaríkjunum. Bíllinn sá tórði í fjórar kynslóðir; frá 1967 til 2002.