Nýr Jaguar J-Pace rafknúinn sportjeppi á að takast á við Tesla Model X
- Jaguar skipuleggur nýjan stóran rafknúinn jeppa sem mun sitja efst í röðinni og starfa sem vistvænn valkostur við Porsche Cayenne
Jaguar er að leggja lokahönd á hönnun á nýjum rafknúnum jeppa sem mun sitja fyrir ofan I-Pace í framboði vörumerkisins. Hann verður kallaður J-Pace og á að vera beinn keppinautur Tesla Model X, sem er líka rafknúinn.
Opinberar upplýsingar um J-Pace verkefnið eru ennþá á huldu, en það er litið svo á að rafknúni sportjeppinn verði byggður á sama MLA grnni og mun styðja næstu kynslóð Jaguar XJ og Range Rover.
Pallurinn hefur verið hannaður til að styðja bensín og dísel, tengiltvinnbíla og fulla rafníla en J-Pace verður eingöngu með rafmagn.
Til þess að vera samkeppnishæf við Tesla Model X sviðið, þá þarf J-Pace að ná hámarks WLTP sviðinu í kringum 480 km.
Búist er við fjórhjóladrifi, en MLA grunurinn er sagður geta stutt rafhlöður allt að 100kWst. Hins vegar er einnig líklegt að smærri rafhlöðuvalkostir verði í boði til að lækka verðpunkt J-Pace.
(Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Það var eitthvað torkennilegt sem blasti við lögreglumanninum í Queensland í Ástralíu þegar hann stöðvaði ökumann nýverið. Bíllinn sem maðurinn ók var af gerðinni Suzuki Jimny frá 1990 og hafði bílnum verið breytt í pallbíl. En það vantaði eitthvað…
Peugeot 308 sló í gegn þegar hann kom á sjónarsviðið í annarri kynslóð árið 2014, náði titlinum bíll ársins í Evrópu og gerði góða hluti fyrir franska vörumerkið...
Rafmagn eða ekki, G-Class var óvenjuleg innkoma í Mercedes-Benz línuna og bílaiðnaðinn í heild sinni, með nútímalegri hönnun á upphaflega bílnum frá 1970, smíðaður með yfirbyggingu á grind með heilum öxlum og loforð um meiri torfærugetu - en flestir eigendur myndu þora að prófa.
Ef maður reynir að sjá Burt Reynolds fyrir sér aka Pontiac Firebird Trans Am station-bíl í Smokey and the Bandit þá er tilhugsunin ein sprenghlægileg og fátt töff við hana. Enda fáránleg hugmynd. En þó ekki „steiktari“ en svo að þeir eru til!