VW lagfærir vandamál í hugbúnaði í ID3-rafbílnum
FRANKFURT - Volkswagen hefur lagfært galla í hugbúnaðinum sem höfðu áhrif á afhendingar á ID3 rafbílnum þegar honum var hleypt af stokkunum.
ID3, sem er í svipaðri stærð og Golf, er lykiatriði fyrir VW vegna þess að bíllinn er sá fyrsti af nýrri kynslóð hagkvæmra langdrægra rafbíla sem byggjast á MEB-grunninum. VW hefur breytt verksmiðju sinni í Zwickau í Þýskalandi til að smíða rafbíla á þessum grunni.
ID3 er fyrsta ökutækið úr ID fjölskyldu rafbíla hjá VW.
Verkfræðingar hafa lagað gallana og ID3 bílar sem smíðaðir eru í Zwickau héðan í frá munu virka að fullu, sögðu stjórnendur VW. ID3 bílar sem þegar hafa verið afhentir viðskiptavinum verða innkallaðir og lagfærðir.
Hugbúnaðaruppfærslan þýðir að viðskiptavinir geta notað App Connect. Aukin raunveruleikaútgáfa af vörpun upplýsinga upp á framrúðuna mun einnig virka eins og áætlað var og mun varpa leiðsöguleiðbeiningum í sjónlínu vegarins.
VW stefnir að því að hraða ferlinu eins og kostur er og sumir ID3 bílar geta fengið uppfærsluna í lok árs.
Innköllunin verður þó ekki snögg heimsókn á verkstæðið. Hugbúnaðaruppfærslan er töluverð að stærð og gert er ráð fyrir að viðskiptavinir yfirgefi ökutæki sín á eina nótt til að lagfæra bilunina.
Um það bil 19 milljónir af þeim verða smíðaðir á MEB-grunninum, en mest af þeim sjö milljónum sem eftir eru munu nota öflugan PPE-grunn sem Audi og Porsche eru að þróa.
(Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Við könnumst flest við „jetski“ en „jetcar“ er eitthvað sem maður tengir helst við eyðimerkurakstur þotubíla sem reyna að slá hraðamet. Í þessu tilviki er þetta bíll sem þeysist eftir haffletinum. Sportbíll meira að segja.
Margir muna eftir blessuðum ferðamanninum sem ætlaði á hótel á Laugaveginum en endaði á Siglufirði. Þar var nefnilega LaugaRvegur en hann hefði betur sleppt „r“ inu og farið á Laugaveg í Reykjavík. Það getur nefnilega verið óheppilegt að treysta um of á leiðsögugræjurnar, eins og margir hafa sannreynt!
Það ætti ekki að koma á óvart, en Volvo hefur unnið flest IIHS Top Safety Pick+ verðlaun allra bílaframleiðenda árið 2022. Top Safety Pick+ er aðalverðlaun...
Svona eru bílasenurnar þá teknar upp! Hér er magnað myndband um kvikmyndatökur á bílaatriðum. Hvar steðsetja myndatökumennirnir sig og hvernig er græjunum komið fyrir?