Eru rafbílar óþarflega litlir?
Allir fyrstu rafbílarnir sem undirritaður sá t.d. í sjónvarpi eða settist inn í voru litlir bílar. Mjög litlir bílar. Þeir sem hönnuðu þá virtust vera fastir í þeirri hugmynd að lítill bíll er sparneytinn og umhverfisvænn.
Flestir rafbílar sem eru í boði núna eru í „eðlilegri“ stærð. En er það nóg þegar tekið er tillit til þess að stærri bíll getur borið stærri rafhlöðu?
Kannski fengu Japanskir bílaframleiðendur sína verkfræðinga frá Keio háskólanum en fjöldaframleiðsla á rafbílum hófst skömmu síðar þar í landi?
Þó að rafhlöður fyrir rafbíla séu að þróast í rétta átt og léttast, verða minni og ódýrari, þá gildir enn að stór bíll getur borið stærri og jafnvel fleiri rafhlöður. Þar með ætti stór bíll að draga lengra en lítill rafbíll. Stór rafbíll gæti líka ferjað meiri farangur og farþega.
[Greinin er frá árinu 2020]
Aðrar umfjallanir
Lokaáfanginn í keppninni um „heimsbíl ársins“ eða „World Car of the Year“ færist nær með tilkynningu í dag um þrjú efstu sæti heimslistans...
Framljósin sem kallast hafa „pop-up“, „flip-eye“ eða „hidden-headlights“ settu sannarlega svip sinn á bíla, einkum sportlegri bíla, hér á árum áður. Þessi hönnun ljósa fór bílum misvel en hér er listinn minn yfir flotta og ekki svo flotta bíla með „pop-up“ ljósum.
Öðru hvoru hafa borist fréttir af því að Apple ætli sér inn á rafbílamarkaðinn. Á dögunum kom Reuters-fréttastofan með aðeins ítarlegri fréttir um málið.
Yoke stýri, eða „klafastýri“ eins og kollegi minn hefur kallað það, hefur verið umdeilt síðan það kom í Tesla 3. Fyrirbærið minnir helst á eitthvað í flugstjórnarklefa en þetta óvenjulega bílstýri er ólöglegt m.a. í Noregi. Af hverju? Bjørn Nyland, rafbílasérfræðingur, fræðir okkur um það.