Hyundai mun koma með enn minni sportjeppa
Hyundai mun bæta við öðrum litlum sportjeppa í framboðið í Evrópu og tvöfalda framboð sitt í flokki sem stækkar hratt.
Bayon er fyrir neðan Kona, litla sportjeppann og tengist öðrum sportjeppum bílaframleiðandans - stóru sportjeppunum Tucson og Sante Fe og Nexo vetnisbílnum.
Hyundai sendi frá sér þessa kynningarmynd af Bayon.
„Með því að setja á markað nýja viðbótargerð í B-flokki (flokki minni bíla) sem byrjunarstærð í jeppalínu okkar, sjáum við frábært tækifæri til að svara enn betur kröfum evrópskra viðskiptavina og auka framboð okkar í mjög vinsælum stærðarflokki“, sagði, Andreas-Christoph Hofmann, stjórnandi markaðssetningar og vöru Hyundai fyrir Evrópu í yfirlýsingu.
Nafnið Bayon var innblásið af borginni Bayonne í suðvestur Frakklandi, sagði Hyundai.
Vaxandi hluti markaðarins
Bayon mun keppa við nýja þáttakandur, þar á meðal Ford Puma og væntanlegum Toyota Yaris Cross í flokki lítilla sportjeppa.
Nýir bílar í þessum hluta, eins og Bayon munu auka fjölda bíla í þessum stærðarflokki í meira en 20 gerðir en voru sex fyrir áratug.
Aukning í sportjeppum og rafbílum
Í kynningu fyrir fjárfesta í þessum mánuði sagðist Hyundai ætla að auka framboð rafknúinna bíla í sportjeppa- og „corosover“ sem og lítilla bíla.
Litli sportjeppinn gæti verið rafknúin rafhlöðuútgáfa af Bayon. Hyundai vildi ekki tjá sig nánar um málið.
Eins og er, selur Hyundai Kona í bensín-, tvinnbíls- og rafhlöðuútgáfum í Evrópu. Hyundai selur einnig Ioniq bílinn með fullri rafdrifinni drifrás, ásamt tengitvinn- og fullri blendingsútgáfu.
(Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Fyrsti apríl er löngu liðinn og allt það en eins og svo oft þegar bílafólk bregður á leik þann dag verða til hugmyndir sem eru nú bara nokkuð góðar. Eitt slíkt dæmi er Ram ábreiðan sem er auðvitað bara ódýrt og létt grín en svo margir sem væru til í að eiga eins og eina slíka ábreiðu.
Chevrolet Impala var kynntur til leiks árið 1958. Þetta var kraftmikill kaggi og ákaflega vinsæll. Menntaskólanemar voru margir ánægðir með plássið aftur í.
Við hjá Bílabloggi heimsóttum samgöngusafnið að Stóragerði í Skagafirði fyrir skömmu. Þar hittum við fyrir staðarhaldara og spurðum þá nokkurra...
Risi, fíll, smælki og ævisaga bíls eru á meðal uppákoma í þessari grein sem í upphafi lét lítið yfir sér en tók U-beygju fljótlega á lyklaborði blaðamanns.