Ný vottun viðgerða verndar neytendur
Ný Evrópuvottun á bílaviðgerðum á Íslandi tryggir fulla árekstravörn, óskerta verksmiðjuábyrgð og 3ja ára ábyrgð á tjónaviðgerðum.
Fyrsta Eurogarant vottunin á Íslandi afhent. Torfi Þórðarson, stjórnarmaður FRM (Félags Réttinga- og málningarverkstæða), Stefán Magnússon, BSI á Íslandi og Kristmundur Árnason, Bílastjörnunni.
Áhersla á umferðaröryggi almennings, aukin neytendavernd og áframhaldandi ótakmörkuð verksmiðjuábyrgð á bílum eftir tjónaviðgerð eru lykilþættir í evrópska gæðastaðlinum Eurogarant sem vottað hefur fyrsta verkstæðið á Íslandi. Á annan tug verkstæða hérlendis vinnur að því að fá samskonar vottun. Nauðsyn til að tryggja öryggi segir fagfélagið FRM.
„Nýleg dæmi sanna að fólk getur keypt vel útlítandi bíl sem er stórskemmdur, nærri verðlaus og jafnvel hættulegur. Við eigum flest börn í umferðinni og þessi staðall snýst um að bílar séu áfram 100% öruggir og í ábyrgð eftir að tjón er lagfært.“ segir Kristmundur Árnason, framkvæmdarstjóri Bílastjörnunnar, fyrsta fyrirtækis á Íslandi til að fá Eurogarant vottun.
„Ný tækni og efni eru að umbylta bílaframleiðslu og fækka dauðaslysum.
Viðgerðatæknin hefur líka gjörbreyst. Eurogarant endurspeglar þörfina á að uppfæra gæða- og eftirlitskerfi í bílaviðgerðum í átt að því sem tíðkast í flugvélaheiminum, að fara eftir ítrustu kröfum framleiðenda.“ segir Ragnar Geir Gíslason, formaður Félags réttinga- og málningarverkstæða.
Prófanir í Þýskalandi og Svíþjóð sýna að röng rétting á B-bita, sem veitir vörn fyrir hliðarárekstri, getur helmingað styrk bitans sem valdið getur banaslysum.
Þá er yfirbygging bíla hönnuð þannig að hún dragi í sig högg og loks þurfa loftpúðar að blásast út á nákvæmlega réttum tíma til að veita fulla vörn við árekstur. Röng rétting getur dregið úr höggþoli yfirbyggingar og virkni loftpúða með lífshættulegum afleiðingum.
Verksmiðjuábyrgð: Eurogarant vottun tryggir að viðgerð sé í samræmi við ítrustu kröfur bílaframleiðanda. Hæstiréttur Þýskalands komst að þeirri niðurstöðu árið 2010 að réttingavinna á Eurogarant vottuðu verkstæði sé jafngild því sem bílaframleiðendur krefjast af umboðsverkstæðum og tryggi því áframhaldandi verksmiðjuábyrgð framleiðanda.
Aukin neytendavernd: Eurogarant verkstæði veitir 3 ára gæðaábyrgð á tjónaviðgerðum eða einu ári lengur en neytendalög á Íslandi krefjast.
AIRC International, alþjóðleg samtök réttingaverkstæða standa að Eurogarant. BSI á Íslandi, sem sér um faggilda vottun á ISO stöðlum, er ábyrgt fyrir úttektum og vottun á Eurogarant á Íslandi. Eurogarant starfar með hag almennings og aukið umferðaröryggi að leiðarljósi.
Aðrar umfjallanir
Fyrsti Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er lentur á Íslandi og kominn í sýningarsal Ford hjá Brimborg til sýnis og reynsluakturs. Mjög mikill áhugi er fyrir þessum...
Fiat 500, eða cinquecento er greinilega ítölsk hönnun, líkt og Vespa, ímynd bílsins er almennt tengd Ítalíu. Upprunalega hét Fiat 500, Topolino, sem þýðir að „litla músin“...
Uppfærður Subaru Forester hefur verið kynntur í Japan. Autoblog-vefurinn telur er næstum öruggt að þessi andlitslyfting...
Á síðasta ári sýndi BMW M 1000 RR mótorhjólið. Það var fyrsta mótorhjólið til að bera M-merkið eins og aflmiklu...