Sprotafyrirtækið Lucid segir að rafmagnsfólksbíll þeirra sé með lengsta aksturssvið rafbíla til þessa
Lucid Air hefur verið hannaður til að keppa við lúxus rafmagnsfólksbíla eins og Tesla Model S og Porsche Taycan.
Sprotafyrirtæki á sviði rafknúinna ökutækja í Bandaríkjunum, Lucid Motors, sem miðar að því að selja fyrstu lúxusgerðina sína, Lucid Air, snemma árs 2021, sagði að nýi fólksbíllinn væri sá fyrsti til að ná 500 mílna aksturssviði, eða sem svarar 800 kílómetra á rafmagninu einu.
Akstursviðið Lucid Air er áætlað 817 km (517 mílur), eins og það var staðfest í óháðum prófunum hjá þýska verkfræðiþjónustufyrirtækinu FEV með aðferðum sem fylgja náið eftir opinberu EPA-staðlaða prófunarferlinu, sagði Lucid.
Peter Rawlinson, forstjóri Lucid, sagði við Reuters að Air verði upphaflega verðlagður í Bandaríkjunum á „vel yfir“ 100.000 dollara, en sögðu að gerðir á lægra verði kæmu seinna. Tesla Model S byrjar á um 75.000 dollurum í Bandaríkjunum, eða sem svarar 10,3 milljónum íslenskra króna.
Tesla sagði í júní að nýi Model S Long Range Plus væri fyrsta ökutækið sem vottað er af EPA til að vera með áætlaða aksturssvið meira en 400 mílur, eða 640 kílómetra.
Lucid er með aðsetur í Newark, Kaliforníu, í suðausturhluta Silicon Valley, ekki langt frá verksmiðju Tesla í Fremes.
Lucid var stofnað árið 2007 sem Atieva af fyrrverandi framkvæmdastjóra Tesla, Bernard Tse og athafnamanninum Sam Weng. Í upphafi var það verkefni fyrirtækisins að framleiða rafhlöður og rafmagnsdrifrásir bíla fyrir önnur fyrirtæki.
(REUTERS / Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Spurning hvort þetta sé einn sá svalasti Dodge Charger sem sést hefur til þessa? SpeedKore sem sérhæfir sig í ofurútfærslum...
Rafhlöðuframleiðandinn StoreDot hefur opinberað djarfar áætlanir um að framleiða rafhlöður sem geta tekið við hleðsluhraða langt umfram það sem er í boði í dag...
Duncan Aldred, varaforseti Buick og GMC á heimsvísu, sagði á þriðjudag að Hummer „Edition 1“ sem kostar 112.595 dollara (að meðtöldum...
Það er gaman að greina frá þeirri húmorísku staðreynd að það sem flestir lásu í janúarmánuði á Bílabloggi var einmitt greinin um efnið sem Facebook hafnaði 2021. Þess vegna prófuðum við að magna færsluna með öllum „stórvarasömu“ greinunum og „voilà“: Hún flaug í gegn!