Hyperion XP-1 vetnis súperbíll verður opinberaður í ágúst
- Frumgerð bandaríska sprotafyrirtækisins notar Nasa-tæknitil að skila afköstum ofurbíla
Bandarískasprotafyrirtækið Hyperion mun afhjúpa vetnisknúna XP-1 ofursportbílinn sinn ínæsta mánuði og lofar afköstum „ofurbíls“ með tækni frá Nasa í drifrásinni.
Bíllinn sem brátt verðurfrumsýndur – og sem er forsýndur í nýju myndbandi, hér að neðan - er sagðurknúinn af „afkastamikilli vetnis-rafmagns drifrás“ sem notar tækni semupphaflega var þróuð fyrir geimferðastofnun Bandaríkjanna.
Þetta er sagt bjóða upp ágrænni valkost við bensín- og dísel ofurbíla, auk þess að vera praktískari enrafknúnir ofurbílar eins og Lotus Evija og Rimac C_Two, vegna þess að kaupendurþurfa ekki að hafa áhyggjur eins mikið af aksturssviði og hleðslutíma.
Breiður framendi líkistBugatti Veyron, en snið hans, sem var forsýnt fyrr á þessu ári, bendir til þessað bíllinn sé með hallandi þaklínu í coupé-stíl og bogadreginn að aftan. Það eróljóst hvort hann sé með tvö eða fjögur sæti.
Þeir hjá Hyperion eru ennþá tregir að veita upplýsingar varðandi frammistöðu XP-1 og heldur því aðeinsfram að það verði meira en samsvörun við akstursmáta nútíma ofurbíla.
(frétt á Autocar)
Aðrar umfjallanir
Renault skilaði töluvert sláandi sölutölum í vikunni til allra sem aðeins höfðu veitt gaum að sölunni hjá Tesla...
Svo mikil er spennan fyrir rafknúnum pallbílum í Bandaríkjunum að fólk virkilega pantar bara allt heila klabbið; Rivian, Cybertruck, F–150 Lightning, Chevrolet Silverado EV… Já, fólk borgar staðafestingargjaldið og kaupir svo þann sem fyrstur kemur í röðinni. Og biðin virðist endalaus.
Schwarzenegger sem bílasali… veit ekki alveg með þetta. Myndir þú kaupa af honum bíl? Alla vega ekki rafbíl, eða hvað?