Nýr og endurhannaður Renault Clio frumsýndur hjá BL
BL við Sævarhöfða frumsýnir á morgun, laugardaginn 20. júní milli kl. 12 og 16, nýjan og endurhannaðan Renault Clio, einn vinsælasta bíl framleiðandans sem fyrst kom fram á sjónarsviðið árið 1990. Nú, fimmtán milljón eintökum síðar kynnir Renault tæknilega fullkomnasta Clio frá upphafi.
Heldur sínum megineinkennum
Clio hefur fengið nýjan undirvagn og yfirbyggingu sem tekið hefur fáguðum en um leið sportlegum breytingum í ætt við Megane þar sem hönnun vélarhlífar með upphækkuðum miðjuhluta, stærra grilli og endurhönnuðum framljósum kalla fram sterka og fallega nærveru.
Um leið hafa hönnuðirnir gætt þess að umturna ekki þeim megineinkennum sem eiga sinn þátt í einstökum vinsældum bílsins sl. þrjátíu ár.
Ný hönnun og fleiri valmöguleikar
Áhrif nýrrar hönnunar í Clio leyna sér ekki þegar litið er inn í farþegarýmið sem hefur verið endurhannað frá grunni og allt hið glæsilegasta í ásýnd og efnisvali. Ný sæti, nýr og stærri snertiskjár fyrir upplýsinga- og afþreyingarkerfið og fleira blasir strax við auk stafræns „ökumælis“ sem leyst hefur af hólmi eldri skjá í mælaborðinu. Hægt er að velja um nokkrar mismunandi útfærslur á hönnun farþegarýmisins í nýjum Clio.
Innra rýmið er meira en í forveranum og má sem dæmi nefna að farangursrýmið er 91 lítra stærra þrátt fyrir örlítið lægri yfirbyggingu sem hefur í för með sér meiri straumlínulögun, aukið loftflæði og sportlegri ásýnd.
Í völdum útfærslum er hægt að velja Clio með 17“ felgum og á næsta ári verður hann auk þess fáanlegur í tvinnútgáfu, fyrstur fólksbíla Renault.
5 Stjörnur Euro NCAP
Nýr Clio hefur þegar gengist undir öryggispróf Euro NCAP og hlotið fullt hús stiga hjá stofnuninni, 5 stjörnur, fyrir gott öryggi og búnað. Clio er skilgreindur sem einn öruggasti nýi bíllinn á markaðnum í sínum flokki, m.a. fyrir viðnámsgóða yfirbyggingu, gott öryggi fyrir ökumann og farþega, einkum er varðar vörn gegn meiðslum á hálsi, brjóstkassa, lærum og hnjám.
Clio er einnig búinn góðu aðstoðarkerfi, m.a. akreinavara, sjálfvirkri hemlun og fleiri öryggisaðgerðum eins og hægt er að kynna sér á bl.is.
Tvisvar „Bíll ársins“ í Evrópu
Renault Clio var fyrst kynntur til leiks árið 1990 og hefur hann frá upphafi verið vinsælasti smábíllinn í heimalandi sínu auk þess að vera jafnan í 1. eða 2. sæti á Evrópumarkaði í sínum flokki. Clio er einn af einungis þremur fólksbílum í sínum flokki á markaðnum sem tvisvar hefur verið kjörinn „Bíll ársins“ í Evrópu. Á síðasta ári var Clio söluhæstur í sínum flokki í Portúgal og Slóveníu auk Frakklands.
Kostar frá 2.990.000 kr.
BL býður nýjan Renault Clio í þremur útbúnaðarfærslum og kostar grunngerð bílsins 2.990.000 kr. Eldsneytiseyðsla er rúmir 4 lítrar og Co2 losun frá 109 g á hverja 100 km.
Aðrar umfjallanir
Rafbíllinn Volkswagen ID.4 hefur verið krýndur heimsbíll ársins 2021. Verðlaunin eru veitt af nefnd 93 blaðamanna sem eru fulltrúar 28 mismunandi landa...
Það er óvenjuleg spyrna sem við skoðum hér í dag. Fjórir pallbílar; 835 hestafla rafpallbíll, 702 hestafla Hellcat V8, 450 hestafla twin túrbó V6 Ecoboost og í aukahlutverki er sá bíll sem í 30 var hraðastur allra pallbíla. GMC Syclone.
FRANKFURT - Volkswagen Group og Microsoft eru að víkka út samstarf sitt með skýjatækni bandaríska hugbúnaðarrisans...
BL frumsýnir á morgun, laugardaginn 6. júní, nýjan Land Rover Defender 110. Sýningin verður haldin samtímis á fjórum stöðum á höfuðborgarsvæðinu milli kl. 12 og 16...