Infinity boðar meiri lúxus
Það vakti heldur betur athygli þegar Infinity kynnti nýja herferð sem þeir kalla Nissan-Plus sem part af endurskipulagningu fyrirtækisins. Jafnvel þótt að þessi yfirlýsing kunni að hljóma þannig að fyrirtækið væri þynna út gæði vörumerkisins Infinity fullyrðir framkvæmdastjóri þess að aðalmarkmiðið verði á framleiðslu lúxusbíla í náinni framtíð.
Nýta grunneiningar Nissan
„Við erum ekki á þeim stað sem við viljum vera“ kvað Kargar. Þónokkrir nýir bílar eru á færibandinu, þar með talinn nýr jepplingur með fastback-línu líkt og BMW X6 bíllinn sem kallaður er QX55. Kargar sagði einnig að í framtíðarplönum fyrirtækisins væru margar gerðir nýrra bíla í startholunum sem munu byggðir á grunni Nissan en Nissan er móðurfyrirtæki Infinity.
Ný lína fyrirtækisins verður bæði knúin bensín mótorum, blendingsvélum (hybrid) og rafmagns drifrásum.
Samnýting grunneininga í bílaframleiðslunni er nauðsynleg til að spara fjármuni sagði Kargar. Samkeppnisaðilar okkar eru að eyða gríðarlegum fjármunum í þróun nýrra hugmynda tengdum rafmagnsbílum og tækninni í þeim.
Það má því ætla að gerðirnar Q50 og Q60 sem báðar eru búnar afturdrifi muni ekki vera á framleiðslu lista fyrirtækisins, hvað þá Sentra sem hefur verið einn þekktasti bíllinn frá Infinity - nema í breyttri mynd.
Nýju gerðirnar munu verða með flottari innréttingum og meiri lúxus í alla staði og njóta nýrra tækni áður en Nissan sjálfir nota hana í sínar gerðir - sem er talsvert einkennilegt því Nissan hefur kynnt nýjungar í sínum bílum áður en þær hafa verið settar í Infinity.
Nýjar gerðir, ný tækni
Bílafjölmiðlar draga þær ályktanir að ný kynslóð Q60 muni koma á næsta ári og muni verða byggð á grunni næsta Pathfinder Nissan samsteypunnar. Blendingsmódel (hybrid) byggð á nýrri tækni Nissan, ePower tækninnar eru áætluð á markað árið 2023 og að minnsta kosti ein gerð rafmagnsbíls er í þróun hjá fyrirtækinu.
Ég sá fyrir mér þessa nýju bíla - fjögur ár fram í tímann fullyrti Kargar. Þessir bílar verða geggjaðir, tæknin verður bylting og þú munt upplifa lúxus. „Við erum ekki að fara niður í gæðum, við erum að fara uppávið“ sagði Kargar að lokum.
Infinity hefur ekki verið í boði á Íslandi síðan Ingvar Helgason var við lýði og var bílamerkið þá selt sem lúxúsútgáfa af Nissan bílunum. Þar sem við íslendingar erum jú spenntir fyrir lúxus er spurning hvort Infinity sjáist brátt aftur í sölu hjá íslensku bílaumboði?
(Byggt á frétt autoblog.com)
Aðrar umfjallanir
Hefur þú heyrt af kraftaverki Trabantsins frá Íslandi? Ef ekki, þá gæti þér þótt þessi litla grein skemmtileg. Líka ef þú hefur heyrt söguna áður!
Liturinn á Porsche 992 Stinger GTR í Carbon útfærslu TopCar Design er sannarlega ekki eitthvað sem maður hefði getað látið sér detta í hug. Hann minnir á súkkulaði. Hvað næst? Avocado?
Norðmönnum er margt til lista lagt, eins og öðrum mönnum. Nýverið fór fram í Lillesand, fyrsta umferð í Noregsmótinu í drifti en þetta er víst bara rétt að byrja þar. Algjört jaðarsport en þetta sem hér sést lofar virkilega góðu, að mati undirritaðrar! Eins og maður segir í Noregi (ef maður er frekar töff): „Drit kul!“
Nítján ára piltur í Flórída mun hafa kortlagt flugferðir einkaþotu Elon Musk, stofnanda og forstjóra Tesla. Upplýsingarnar, sem eru í sjálfu sér opinberar, hefur pilturinn m.a. deilt á Twitter og nú er svo komið að Musk hefur að sögn piltsins boðið honum fúlgur fjár fyrir að hætta þessu.