Ford sýnir gamlar teikningar af hönnun GT40
- Keppnisbíll Ford sem sigraði Ferrari á sínum tíma þróaðist út frá þessari hönnun
Það er stundum bæði gaman og gott að róta í gömlum hirslum, því kappakstursbíladeild Ford hefur grafið upp gamlar teikningar af upprunalega GT40 keppnisbílnum, teiknaðar fyrir 57 árum. Hönnunin leiddi til bílsins sem sigraði Ferrari við Le Mans og sigraði fyrst í heildina í sólarhringskappakstrinum fjórum sinnum í röð, frá 1966 til 1969.
Upprunaleg hönnun GT GT40
Teikningarnar fundust af skjalavörðum sem hafa verið að skoða filmur. Þrjár þeirra sýna fyrstu hugmyndinar um ytri hönnun GT40; sú fjórða er úrklippt sem sýnir hluti af ramma og fjöðrun íhluta GT40.
Útlitsteikningarnar sýna mikil áhrif frá framúrstefnulegri hönnun bíla um 1960. Hönnunin er mjög slétt og ef grannt er skoðað svolítið ítölsk. Framendinn sýnir form sportbíla með miðjuvél á sjöunda og áttunda áratugnum.
Upprunalegt leirlíkan af Ford GT40.
Þessi hliðarsvipur birtist líka í myndinni af leirlíkaninu, sem Ford deildi líka í sömu Twitter færslunni.
Að mati Autoblog sem birti teikningarnar er mest heillandi teikningin sem sýnir fjöðrun GT40 að framan og aftan, vél, rafgeymi og jafnvel varadekk. Þessi síðastnefndu tvö atriði eru sýnd í framenda GT40, langt í burtu frá drifrásinni til að ná betra jafnvægi.
Skjalaverðir Ford hafa deilt öðrum gimsteinum frá sama tímabili undanfarið, þar á meðal fyrstu teikningunum af því sem mundi verða Mustang eftir hönnuðinn Gale Halderman, sem lést í lok apríl.
Aðrar umfjallanir
Fyrsta bílablaðið kom út á þessum degi fyrir 126 árum. Ótrúlegt en satt! „The Horseless age“ var leiðarvísir um hvernig mætti skipta úr hestum yfir í hestöfl, ef svo má segja.
Þetta er kannski of einföld spurning því svarið er augljóst, býst ég við. En já, það er nú þannig að það er aldrei of mikið af krómi og aldrei of mikið af osti!
Ótrúlegt en satt þá reyndust uppljómuðu hjólbarðarnir frá Goodyear algjört „flopp“! Hugmyndin um hjólbarða sem lýsa í myrkri er sannarlega skemmtileg og gott ef ekki spaugileg líka. Hér er sagan!
Fer það betur með sjálfskiptinguna að skipta í hlutlausan á umferðarljósum en að leyfa bílnum að malla í „drive“ meðan beðið er eftir grænu ljósi? Það er sannarlega góð spurning en Bílablogg fékk þessa klassísku spurningu frá einum lesanda. Lítum nánar á málin!