Minna framboð á Land Rover Defender eftir lokun á verksmiðjunni vegna Covid-19
Nýi Defender-jeppinn frá Land Rover var frumsýndur með viðhöfn hér á landi um helgina, en nú berast fréttir um að minna framboð verði á bílnum í sumar á einhverjum markaðssvæðum í kjölfar átta vikna lokunar einu verksmiðjunnar.
Nýi Land Rover Defender jeppinn er að koma til söluaðila víða um heim, þar á meðal bandarískra umboða á réttum tíma en ekki í því magni sem Jaguar Land Rover hafði skipulagt.
Samkvæmt frétt á Automotive News Europe verður minna framboð á bílnum í sumar þar sem eina Defender-verksmiðjan, í Nitra í Slóvakíu, er þessa dagana að komast á fullan hraða eftir átta vikna lokun vegna Covid-19 og söluaðilar byrja að afhenda seldar pantanir.
Fyrstu afhendingar Defender jeppans frá Land Rover í Norður-Ameríku hófust til dæmis í síðustu viku.
Verksmiðjan, sem kostaði sem nam 1,8 milljarði dollara að byggja, og sem opnaði árið 2018, smíðar Defender fyrir meira en 100 markaði á heimsvísu; verksmiðjan hefur árlega getu til að smíða 150.000 ökutæki. Land Rover Discovery jeppinn er einnig smíðaður þar.
Land Rover stöðvaði framleiðslu í verksmiðjum sínum 20. mars - 18. maí þegar faraldur COVID-19 stóð sem hæst í Evrópu.
Fyrsta afhending Defender í Norður-Ameríku hófst í síðustu viku og lauk 23 ára fjarveru jeppans á þeim markaði.
Forsvarsmenn Land Rover hafa ekki upplýst hversu margir Defender-jeppar væru tiltækir og þó framboð bíla frá verksmiðjunni væri að byrja að aukast, þá verður skortur í allt sumar, staðfesti Land Rover.
Aðrar umfjallanir
Forstjóri Volkswagen hefur endurvakið umræðu um lítinn rafknúinn bíl á sem yrði ódýrari en ID 3...
Hvað fær fólk til að kaupa einhvern tiltekinn bíl? Hvort auglýsingar vegi þar þungt eður ei er ekki gott að...
Það er ekki satt að allar löggur elski kleinuhringi – alla vega ekki svona kleinuhringi. Náunginn sem deildi þessu myndbandi upphaflega á Reddit segist búa í Arkansas og þar snjói afar sjaldan. „Kannski tvisvar á ári,“ skrifaði hann og jú, þarna kom dálítil föl.
Það er svo margt sem við hugsum aldrei um, og tökum sem sjálfsögðum hlut, til dæmis að þegar það er rigning eða...