Volkswagen kynnir nýja hugmynd að rafbíl 19. nóvember í Los Angeles
Samkvæmt frétt á Autoblog mun Volkswagen afhjúpa alvegg nýjan hugmyndabíl, hluta af ID-bílum VW sem hluta af sýningu sem verið er að skipuleggja á rafknúnum ökutækjum og sjálfkeyrandi ökutækjum í næsta mánuði í Petersen bifreiðasafninu í Los Angeles.
Það eina sem Volkswagen hefur sent frá sér varðandi þennan nýja rafbíl, er þessi óljósa mynd af afturenda þess nýja rafbíls. Mynd Volkswagen.
VW býður ekki upp á neinar upplýsingar um hugmyndabílinn, sem verður frumsýndur á einkaatburði 19. nóvember á fréttadögum fyrir bílasýninguna í Los Angeles eða L.A. Auto Show, nema að segja að það verði einn af fjórum hugmyndabílum ID sem verði á stalli á Petersen sýningunni.
Volkswagen er að forkynna sýninguna „Building an Electric Future“ með útfærslu á ID.Vizzion, framúrstefnulegum sjálfakandi rafhugmyndabíl á stigi 5 sem var afhjúpaður á síðasta ári, bíll sem er með ekkert stýri og engin fótstig og er ætlað að koma á markað á árunum á milli 2020 og 2022.
Hvað varðar frekari upplýsingar, segir VW að sýningin muni einbeita sér að innréttingum og tæknibúnaði nýja hugmyndabílsins, með myndböndum sem „varpa ljósi á hvernig þessi bifreið mun auka framtíðar akstursupplifunina,“ sem hljómar í anda Vizzion.
Í Bandaríkjunum mun Volkswagen koma fram með ID.4, sem áður var kallaður ID.Crozz, fjögurra dyra „crossover“ sem líklegt er að komi á marlað seint á næsta ári eða snemma árs 2021, á eftir ID.Buzz, rafhlöðuútgáfunni af hinu fræga „rúgbrauði“, að sögn árið 2022.
Sýningin „Að byggja upp rafmagnaða framtíð“ mun vera í fimm herbergjum þegar hún opnar almenningi 20. nóvember. Hún mun sýna MEB grunn Volkswagen fyrir rafknúin ökutæki og nota gagnvirka eiginleika þar á meðal sýndarveruleika og opið ökutæki sem gestir geta nálgast og væntanlega farið inn íþ. Sýningin verður umfangsmikil uppsetning í röðinni „Driving Toward Tomorrow“ (eða ekið í átt til framtíðar)í Petersen-safninu þar sem litið er á bílaiðnaðinn varðandi framtíð hönnunar flutninga og hugmyndabíla frá ýmsum bílaframleiðendum.
Aðrar umfjallanir
Hyundai segir að nýjasti smábíllinn þeirra, i10, verði með einum besta öryggispakkanum í sínum stærðarflokki.
Að kvöldi þriðjudagsins 12. nóvember 2019 veitti BILD am SONNTAG, stærsta sunnudagsblað Þýskalands, og evrópski AUTO-BILD hópurinn „Gullna stýrið“ í 43. sinn...
Bílaumboðið Askja hefur um árabil verið með sína starfsemi við Krókhálsinn, því að Krókhálsi 11 er sala og þjónusta Mercedes-Benz fólks...
Automotive News Europe segir í frétt að Hyundai vonist til að auka hlut sinn í flokki minni bíla í Evrópu með þriðju kynslóð i10...