Nýr i-10 frá Hyundai verður búin nýjum öryggisþáttum og tengimöguleikum
Hyundai segir að nýjasti smábíllinn þeirra, i10, verði með einum besta öryggispakkanum í sínum stærðarflokki.
Hyundai sendi frá sér teiknaða mynd af nýja i10 sem sýnir að bíllinn mun vera breiðari á velli og að breidd, hæð og hjólastærð, hefur verið endurskilgreind.
Þriðja kynslóð i10 mun verða frumsýnd bílasýningunni í Frankfurt í september, eins og við höfum fjallað um hér áður.
Öryggisbúnaður hans mun fela í sér forvarnir gegn fram árekstri sem notar ratsjárskynjara til að greina bíla og gangandi vegfarendur fyrir framan ökutækið og myndavél að aftan. Stöðugleikahjálp og aðgerð til að fylgjast með þreytu ökumanna verður staðalbúnaður, segir Hyundai í fréttatikynningu.
I10 mun einnig bjóða upp á tengibúnað eins og Hyundai Bluelink sem gerir eigendum kleift að læsa eða opna bílinn sinn í gegnum snjallsíma, ásamt Apple Car Play, Android Auto og þráðlausri snjallsímahleðslu.
Kemur nýr inn þegar aðrir eru að hætta
Nýjasti i10 mun koma á markaðinn þegar önnur vörumerki eru að draga minnstu gerðir sínar af evrópska markaðnum vegna aukins kostnaðar við að þróa þær til að mæta harðari losunar- og öryggisreglum.
Aðrar umfjallanir
Samkvæmt eftirfarandi frétt frá fréttastofu Reuters setti Toyota bZ4X, fyrsta fjöldaframleidda rafbílinn sinn, á markað í Japan eingöngu í kaupleigu...
Citroën 2CV er merkilegur bíll sem var kynntur fyrst opinberlega á bílasýningunni í París, eða Paris Mondial de l'Automobile 1948 og framleiddur af Citroën á árunum 1948–1990...
Þá er hann loks formlega kominn fram á sjónarsviðið – nýr Nissan Qashqai sem margir hafa beðið eftir með óþreyju...
PARÍS - Renault hefur sent frá sér myndir af framleiðsluútgáfu væntanlegs Megane; rafknúnum smábíl í „léttum“ dulbúningi, sem sýndur...