Hyundai stofnar flugdeild
Hyundai tilkynnti á dögunum að þeir hefðu stofnað sérstaka deild sem tileinkuð er þróun og hönnun fyrir framtíðarlausnir þegar kemur að sjálfvirkum drónum í flugi með fólk á milli staða í þéttbýli. Þéttbýlisfluglausnadeildin, eða Urban Air Mobility Division eins og hún kallast á ensku, mun hjálpa Hyundai við að hanna og bjóða lausnir á þessum nýja og spennandi markaði þar sem áætlanir gera ráð fyrir miklum vexti á komandi árum.
Hyundai hefur ráðið Dr. Jaiwon Shin sem framkvæmdarstjóra nýja sviðsins. Dr. Shin starfaði áður hjá bandarísku geimferðarstofnunni NASA í 30 ár við rannsóknir og þróun.
Í yfirlýsingu sagðist hann vera mjög spenntur og ánægður með að fá að stýra þessarri nýju deild hjá Hyundai og hlakkaði mikð til að framleiða vörur og grunntækni sem myndi gera Hyundai leiðandi á þessum markaði um ókomin ár.
Aðrar umfjallanir
Gleðilegt ár lesendur góðir og þakka ykkur árið sem er nýliðið! Hér kemur það sem ykkur fannst áhugaverðast á vefnum okkar 2021!
Varúð! „Nördastöff. Hér er hreinræktað nördamyndband og þá er búið að vara við því. Bílaflutningabílar með Novitec Ferrari 812 N-LARGO og 812 GTS N-LARGO bílum eru hér affermdir og það geggjað að hlusta á þessar V12 vélar.
ÍSBAND umboðsaðili JEEP og RAM á Íslandi býður til stórglæsilegrar jeppa- og pallbílasýningar laugardaginn 6. júní...
Nýjasta Honda Jazz verður hleypt af stokkunum aðeins sem blendingur (hybrid) með rafmagnaða útgáfu sem kæmi síðar. Takeki Tanaka...