Reynsluakstur: Skoda Enyaq IV80, árgerð 2022
Umboð: Hekla

Aksturseiginleikar, drægni, úrval og verð
Skynvæddur hraðastillir ekki staðalbúnaður

Rúmgóður rafmagnsbíll

Nú eru rafbílar í sókn á Íslandi. Þeir seljast sem aldrei fyrr og umboðin hafa vart undan eftirspurninni. Reyndar er það svo að langur biðlisti er eftir nýjum bílum hjá flestum umboðum. Markast það meðal annars af Covid faraldri og öðrum hörmungum heimsins.

image

Glæsileg hönnun á nýjum Skoda Enyaq 100% rafbíl.

image

Bílinn er hægt að fá í fjölmörgum útfærslum.

Skoda Enyaq vakti mikla athygli þegar hann lenti í Heklu í fyrra. Bíllinn er frumraun Skoda í framleiðslu hreinna rafbíla og verður að segja að vel hafi til tekist.

Skoda Enyaq er byggður á MEB grunni VW samsteypunnar og er á sama undirvagni og VW ID.4. Það er því  margt sem er líkt ef ekki alveg eins í þessum tveimur rafbílum.

Skoda Enyaq er ansi mikið fyrir augað. Falleg lína og sambland hefðbundinna hönnunar í bland við nýtísku rafbílahönnun gerir bílinn að góðum kosti fyrir mjög breiðan markhóp.

Ríkulegt úrval

Hekla býður Skoda Enyaq í hvorki fleiri né færri en níu útgáfum. Allt frá byrjunartýpunni sem heitir Skoda Enyaq IV60 og er afturdrifinn með 58 kwst. rafhlöðu. Sá bíll er að fara allt að 412 km. á hleðslunni skv. WLTP staðlinum.

Bíllinn sá er um 180 hestöfl og kostar frá 5.790.000 (apríl 2022).

image

Allt að 535 kílómetra drægni skv. WLTP staðlinum.

Reynsluakstursbíllinn var hins vegar fjórhjóladrifinn og með stærri rafhlöðunni. Rafhlaðan tekur um 77 kwst. og drægni er um 496 km. skv. WLTP staðlinum. Hestöflin 265 talsins og hægt að hlaða frá 10-80% á um 40 mínútum. Sá bíll tekur við allt að 125 kw. í hraðhleðslu en um 11 kw. í heimahleðslu. Það þýðir að hægt er hægt er að fullhlaða á um sex til sjö klukkustundum.

Hins vegar er mælt með hlaða rafhlöðuna ekki meira en í 80% að jafnaði.

image

Farangursgeymslan er mun stærri en í öðrum sambærilegum rafbílum.

Tvíburar, þó ekki eineggja

Nú erum við hjá Bílablogg búin að reynsluaka nokkrum rafbílum á síðustu misserum. Nú getum við loksins farið að bera saman slíka bíla að einhverju leyti.

Enyaq er með öðruvísi karakter og sætisstaðan er öðruvísi í bílnum. Mælaborðið er aðeins pakkaðra og þar er meira af tökkum en í ID.4 bílnum.

Stýrið er einnig minna. Allt þetta finnst okkur gefa Skodanum aðeins meiri sportlega eiginleika en til dæmis ID.4.

image

Töff hönnun setur mark sitt á bílinn hvar sem litið er.

Fjöðrun bílsins er stíf en Style Plus bíllinn kemur með stillanlegri fjöðrun. Hins vegar er draumur að aka bílnum og eins og með flesta rafbíla, liggur hann eins og sleggja í beygjum og er afar nákvæmur í stýri.

image

Plássmikill og þægilegur.

Gott pláss og aðgengi

Skoda Enyaq er örlítið lengri en ID.4 bíllinn. Það má alveg finna það í aftursætinu. Fótaplássið er frábært og höfuðpláss einnig. Það fer vel um bæði farþega og ökumann í vel formuðum sætum og gólfið er slétt.

image

Inn- og útstig er gott, bæði að framan og aftan.

image

Rafbílar virka ágætlega Íslandi

Nú hafa undirritaðir báður ekið um á rafbílum í rúmt ár og líkað vel. Það sem komið hefur á óvart er að hugtakið „hleðslukvíði” er eitthvað sem hvorugur okkar þekkir.

Yfirleitt er maður að hlaða yfir nótt í heimahleðslustöð og þá frá um 20-80%.

Maður pælir ekki einu sinni í hleðslutímanum – hann hreinlega skiptir ekki máli.

image

Sérlega flottur frágangur og botninn alveg sléttur í anda rafbíla.

Hleðslukvíði óþarfur

Rafbílar líkt og Skoda Enyaq og ID.4 með uppgefna drægni um og yfir 500 kílómetra duga því vel við íslenskar aðstæður. Ef við horfum til raunnotkunar á bíl eins og ID.4 með uppgefna drægni upp á 500 kílómetra samkvæmt WLTP staðli um fulla rafhlöðu.

Við hlöðum um 80% að jafnaði sem gefur 400 kílómetra. Miðað er við blandaðan akstur.

Að sumri til er hægt að draga 30-40 kílómetra frá þessari tölu vegna sumarhitans á Íslandi. Þá værum við að tala um heildardrægni upp á um 365 kílómetra.

image

Hægt er að stýra aðgerðum í gegnum skjá eða með því að ýta á raunverulega takka fyrir neðan skjáinn.

Fjölskyldubíll eða sportari?

Við mælum með Skoda Enyaq sem hagnýtum fjölskyldubíl með góðu plássi og þægindum. 585 lítra farangursgeymslan er rúmgóð og að henni er gott aðgengi. Mjög vel fer um fjóra farþega í bílnum, fínt að stíga út og setjast inn.

image

Hægt er að velja um mismunandi ljósabúnað en LED ljós eru staðalbúnaður.

image

Helstu tölur:

Verð frá 5.790.000 kr. Reynsluakstursbíll af Style gerð á 7.690.000 kr.(apríl 2022).

Rafhlaða: 77 kWh.

Dráttargeta: 1000 kg.

Drægni: 496 km.

0-100 km á klst. 6,9 sek.

Farangursgeymsla: 585 lítrar.

CO2: 0 g/km.

Þyngd: 2.195 kg.

L/B/H: 4.649/1.879 /1.616 mm.

Myndataka og myndvinnsla: Dawid Galiński.

Útfærsla
Drif
Girkassi
Eldsneyti
Tog-Hö.
Stærð rafhlöðu
Drægni allt að
VERÐ FRÁ.
60 Staðalbúnaður
Afturhjóladrif Sjálfskipting Rafmagn310 - 18058 kWh412 km
60 Style
Afturhjóladrif Sjálfskipting Rafmagn310 - 18058 kWh412 km
80 Staðalbúnaður
Afturhjóladrif Sjálfskipting Rafmagn310 - 20477 kWh548 km
80X Staðalbúnaður
Fjórhjóladrif Sjálfskipting Rafmagn425 - 26577 kWh510 km
60 Style Plus
Afturhjóladrif Sjálfskipting Rafmagn310 - 18058 kWh412 km
80 Style
Afturhjóladrif Sjálfskipting Rafmagn310 - 20477 kWh548 km
80X Style
Fjórhjóladrif Sjálfskipting Rafmagn425 - 26577 kWh510 km
80 Style Plus
Afturhjóladrif Sjálfskipting Rafmagn310 - 20477 kWh548 km
80X Style Plus
Fjórhjóladrif Sjálfskipting Rafmagn425 - 26577 kWh510 km
* Eydsla bL akstur ** 0-100 km/klst
Gert með fyrirvara um prentvillur. HEKLA HF. áskilur sér rétt til breytinga án fyrirvara á verði og búnaði. Vinsamlegast athugið að búnaður á mynd getur verið ólíkur búnaði bílsins.
Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is