Gæðin heilla með 5 ára ábyrgð
Brimborg býður nú alla nýja Peugeot bíla með 5 ára ábyrgð. Ábyrgðin er víðtæk verksmiðjuábyrgð sem gildir fyrir bæði fólksbíla og sendibíla Peugeot.
5 ára ábyrgð Peugeot er mikilvægur þáttur í að styrkja samband okkar við Peugeot eigendur. Í eigenda og þjónustuhandbók + viðauka við skilmála Peugeot finnur þú greinargóða lýsingu á ábyrgðinni, skyldum Peugeot og Peugeot eigenda, upplýsingar um það sem ábyrgðin nær og nær ekki til, ábyrgð gagnvart gegnumtæringu, ábyrgð á varahlutum, takmörkun ábyrgðar, skýrslur um reglubundið viðhald, ryðvarnareftirlit, skýrslur um endurnýjun kílómetrateljara, síma- og netfangaskrá, upplýsingar um þjónustutíma deilda, auk annarra hagnýtra upplýsinga.
Forsendur ábyrgðar
Til að uppfylla ábyrgðarskilmálana þarf að fara með nýja Peugeot bílinn í reglubundið þjónustueftirlit samkvæmt staðli framleiðanda. Forsendur ábyrgðar eru reglulegt þjónustueftirlit á 12 mánaða eða 15.000 km fresti hvort sem kemur á undan. sem kaupandi ber kostnað af.
Viðgerðir sem falla undir ábyrgð
Þú ferð með Peugeot bílinn þinn ásamt eigenda og þjónustuhandbók til viðurkennds þjónustuaðila Peugeot. Allir viðurkenndir þjónustuaðilar Peugeot geta annast viðgerðir sem falla undir ábyrgð. Kaupandi hefur rétt samkvæmt íslenskum lögum til að bera fram kvörtun um galla í allt að tvö ár frá afhendingu bifreiðarinnar.
Aðrar umfjallanir
VW og Ford, með samstarfsaðilanaum Argo, eru að reyna að ná leiðtogum eins og Waymo, samstarfsaðila Google í sjálfkeyrandi tækni...
Alls voru 832 fólks- og sendibı́lar nýskráðir ı́ október sem er 8% aukning frá sama mánuði í fyrra þegar þeir voru 770. Af merkjum BL voru 199 bı́lar nýskráðir borið saman við...
Akstur án olíupönnu, olíusvelt vél og varahlutir settir í bíla með umbúðum og öllu er á meðal verkstæðishryllings vikunnar. Það geta ekki allir verið bifvélavirkjar en ótrúlegasta fólki er treyst til að aka bílum úti í umferðinni.
Núna getur Tesla stigið til hliðar, það er komið nýtt hröðunarmet - hópur tuttugu nemenda frá háskólanum í Stuttgart hefur smíðað hraðskreiðasta...