Rafmagn eða ekki rafmagn?
- Næsta kynslóð Porsche Cayman gæti orðið full rafknúin
- Porsche mun ákveða hvort Cayman og Boxster verði rafbílar í sumar
Porsche færist nær þeirri ákvörðun hvort skipta um 718 Boxster og 718 Cayman í hreint rafmagn - en yfirmaður fyrirtækisins segir að það þurfi enn „nokkra mánuði í viðbót“ áður en hann ákveður hvort þetta sé framkvæmanlegt.
Porsche 718 Cayman T.
Nú hefur Blume viðurkennt að ákvörðunin hafi enn ekki verið tekin en lýsti því yfir að hún verði tekin fyrir sumarið. Hann hefur einnig gefið sterklega í skyn að skipta yfir í rafmagn líti betur út en ekki. Eftir ársuppgjörsráðstefnu Porsche sagði Blume: „Það er tækifæri að við munum gera 718 rafmagnaðann en við erum enn þá á hugmyndatímabili þar sem við höfum ekki ákveðið þetta enn þá. Til að fara í rafmagn núna þurfum við rafhlöðuþróun í framtíðinni.
"Við munum bíða í nokkra mánuði í viðbót áður en við ákveðum hvaða hugmynd við munum nota. En ég held að það séu jákvæðir möguleikar til að gera þetta og þegar við gerum 718 rafmagnaðann ætti að vera hægt að keyra hann eins og 911 og alla aðra sportbíla. “
„Boxster og Cayman fá nýja kynslóð“
Blume sagði að þrátt fyrir að einhverjir aðrir framleiðendur færu út af litla úrvals sportbílamarkaðinum væru Boxster og Cayman viss um að fá nýja kynslóð, óháð því hvort hún er knúin áfram með brunavél eða rafmótorum. „Við munum halda áfram með módelsvið 718“, sagði hann. „Það er ljóst. Hvort það er brunavél eða rafmagn er ekki ákveðið enn þá".
Forstjóri Porshe viðurkenndi þó einnig að bensínvélar eigi enn sæti í framboði fyrirtækisins til skemmri og meðallangs tíma:
"Ég held að við þurfum báðar gerður næstu árin. Þess vegna höfum við sveigjanleika í vöruúrvali okkar til að halda áfram með 911 með brunavélum, til halda áfram með aðra bíla á brunavélum, til að framleiða blendinga með hærra rafmagnssvið – aðeins á rafhlöðum, til að kynna blendinga (hybrid) á 911; það eru enn þá margir möguleikar fyrir brennsluvélar.
(frétt á vef Auto Express)
Aðrar umfjallanir
King of the Street / Outlaw King, bikarmótið í áttungsmílu, fór fram þann 20. ágúst sl. á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni. Þvílíkir ökumenn og þvílíkar ofurgræjur!
Nú líður senn að því að löglegt tímabil vetrarhjólbarða renni út, en leyfilegt er að vera með nagladekk til 14. apríl næstkomandi...
Norðmönnum er margt til lista lagt, eins og öðrum mönnum. Nýverið fór fram í Lillesand, fyrsta umferð í Noregsmótinu í drifti en þetta er víst bara rétt að byrja þar. Algjört jaðarsport en þetta sem hér sést lofar virkilega góðu, að mati undirritaðrar! Eins og maður segir í Noregi (ef maður er frekar töff): „Drit kul!“
Öspin er ein algengasta trjátegundin víða um landið og slútir gjarnan yfir bílastæði við húsin...