Allir framtíðarbílar BMW munu vera byggðir á „New Class“-grunni

Grunnurinn verður notaður fyrir rafmagnsbíla og bíla með hefðbundnum brunavélum

Grunnurinn „New Class“ (Neue Klasse á þýsku) er hannaður til að vera að fullu rafknúinn en mun einnig styðja við bíla með bensínvélar, þar með talið tengitvinnbíla.

Grunnurinn mun bjóða upp á afturhjóladrif sem staðalbúnað, með möguleika á að bæta við framhjóladrifi fyrir aldrif.

    • UKL lítill grunnur er notaður fyrir minni bíla BMW og af Mini. Sá grunnur virkar jafnt fyrir bíla með framdrifi og aldrifi. UKL var hleypt af stokkunum árið 2014 á Mini hatchback.
    • CLAR stærri grunnur, með afturhjóladrifi og aldrifi, notaður fyrir restina af framboði BMW. Hann var settur á laggirnar 2015 með BMW seríu 7-fólksbílnum.

Upphaflega þróaðir fyrir hefðbundnar vélar og tengitvinnbúnað

Uppbygging UKL og CLAR var upphaflega þróuð fyrir brennsluvélar, þar á meðal tengitvinnbíla. Þeir fengu verulega endurbætur með nýju fyrirkomulagi í miðju gólfs til að hýsa rafhlöður rafknúna bíla og langdrægra tengitvinnbíla.

image

Forstjóri BMW, Oliver Zipse, með i4 rafbílinn á árlegum blaðamannafundi bílaframleiðandans á miðvikudag. i4 er byggður á CLAR-grunni. Framtíðargerðir BMW munu nota nýjan grunn sem kallast „New Class“.

New Class grunnurinn verður aðal máttarstólpinn í áætlun BMW að láta rafknúnar gerðir standa fyrir að minnsta kosti 50 prósent af sölu á heimsvísu árið 2030, þar sem allar gerðir þeirra bjóða upp á aðeins rafhlöðuafl.

Jafnvel áður en New Class grunnurinn verður tekinn í notkun árið 2025 sagði BMW að núverandi grunnur þeirra myndi gera fyrirtækinu kleift að selja að minnsta kosti eina rafknúna gerð í 90 prósent af núverandi markaðshlutum árið 2023.

„Við erum fær um að kvarða hann í stærð frá 2-seríu Coupé upp í X7 með núverandi grunni (CLAR)“, sagði hann.

BMW notar sama fyrirkomulag í smíði og við New Class grunninn, sem mun þjóna „öllu vörusafni BMW“, sagði Weber.

Fyrsta nálgun meiri stafrænni búnaðar

Grunnurinn mun einnig hafa „tækni einingar“ sem hægt er að aðlaga fyrir mismunandi svæði, sem gerir kleift að aðlaga stýrikerfi ökutækisins til að uppfylla mismunandi kröfur og stafræn vistkerfi á öllum helstu mörkuðum heimsins. Einingarnar munu einnig leyfa stöðugar uppfærslur til að tryggja að stýrikerfið haldist uppfært.

Stafræna fyrsta nálgunin sem er samþætt í grunninumm gerir viðskiptavinum kleift að bóka og stilla eiginleika allan líftíma ökutækisins. Þetta mun skapa verulegan hluta af tekjum fyrirtækisins í framtíðinni, sagði BMW.

BMW hefur ekki gefið upp hver minnsti bíllinn sem „New Class“ styður verður. Það er mögulegt að næsta 1-sería gæti skipt yfir í þennan nýja afturdrifs/aldrifs-grunn. Núverandi kynslóð hefur ekki afturdrif.

Kínaleið Mini

Weber sagði að framtíðarbílar frá Mini muni nota grunn sem hannaður er með rafmagn sem þungamiðju og þróaður með Kínverska samstarfsaðilanum Great Wall Motor.

BMW sagði að framtíðarbílar rafknúnir bílar Mini sem aðeins nota rafhlöður verði einnig framleiddir í Kína með Great Wall Motor, frá 2023.

Næsti Mini Countryman verður byggður á nýjum grunni ökutækja sem er þróaður með Great Wall.

(Automotive News Europe)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is