Jeep Magneto hugmyndabíllinn vísar leið til framtíðar rafbíla
- Nýr rafknúinn jeppahugmyndabíll byggir á tveggja dyra Jeep Wrangler Rubicon og er með handskiptan gírkassa
Jeep hefur afhjúpað rafknúinn hugmyndabíl, sem kallast Magneto. Það virðist staðfesta að fyrirtækið sé að þróa Wrangler rafbíl til að vera við hlið væntanlegs Wrangler 4xe tengitvinnbíls í framboði fyrirtækisins.
Jeep Magneto er með einn rafmótor sem býr til 281 hestöfl og 370 Nm togi, knúinn 70kWh rafhlöðu.
Þessari rafhlöðugetu er hins vegar skipt upp í fjórar aðskildar einingar sem eru festar á nokkrum stöðum í ökutækinu til að halda þyngd jafnvægis og hjálpa árangri í torfæruakstri.
Með sex gíra handskiptan gírkassa
Það óvenjulega fyrir rafbíla er Magneto með sex gíra beinskiptingu.
Jeep segir að verið sé að setja upp kerfið fyrir mótorinn til að safna endurnýjuðum krafti þar sem ökumaðurinn losar bensíngjöfina þegar kúplingin er tengd.
Líklegri atburðarás er þó sú að hugsanleg framleiðsluútgáfa af Wrangler rafbílnum í framtíðinni (líklega í bígerð fyrir frumsýningu 2022) gæti notað hefðbundna eins hraða sjálfskiptingu.
Jeep Magneto var eitt af fjórum hugmyndabílum sem komu fram fyrir hina hefðbundnu Jeep Safari í Moab, Utah, sem hefst 27. mars og stendur til 4. apríl. Hinir hugmyndabílarnir eru blanda af nútíma og hefðbundnum bílum.
Jeep Gladiator Rubicon er með 256 hestafla 3,0 lítra V6 dísilvél og átta gíra sjálfskiptingu.
Það er líka Jeepster Commando Beach, sem er byggður á Jeep C-101 frá 1968 og er með 335 hestafla 2,0 lítra fjögurra strokka túrbóvél. Innréttingin er með rauð sportsæti og ekkert teppi.
Að lokum er Orange Peelz byggður á tveggja dyra Wrangler og hefur hvorki hliðar- né afturrúður. Hann er knúinn 281 hestöfla 3,6 lítra V6 og geta í torfæruakstri er aukinn með tveggja tommu lyftibúnaði og Fox höggdeyfum.
En hér eru svo nokkrar myndir sem sýna þessa nýju hugmyndabíla frá Jeep betur.
(myndir frá Jeep)
Aðrar umfjallanir
Það er svo gaman að þeim í Garage 54. Þessir rússnesku snillingar eru alltaf að endurbæta hjólið því þeir vita auðvitað að búið er að finna það upp fyrir löngu.
Dacia ætlar að kynna þrjár nýjar gerðir árið 2025, en sú fyrsta kemur á næsta ári í formi stærri bróður Duster jeppans, sem kallast Bigster...
Auðvitað ætti maður aldrei að vanmeta það að undir hrjúfu yfirborði manna, og jafnvel ögn glóðuðu, getur leynst umhyggjusamur bílasafnari. James Hetfield, söngvari Metallica, er gott dæmi um ástríðufullan bílasafnara.
Það er alltaf gaman þegar fólk segir eitthvað gáfulegt, svo ekki sé talað um þegar það er bæði fyndið og gáfulegt. Þetta tvennt getur farið saman en hér eru dæmi um fleyg orð af vörum bíla„kónga“ á borð við Henry Ford og Enzo Ferrari.