Nissan seinkar komu X-Trail á Evrópumarkað
- X-Trail fumsýndur á bílasýningunni í Shanghai
- Bílaframleiðandinn hafði áður ætlað að smíða sportjeppann í Bretlandi, en verður smíðaður í Japan fyrir Evrópumarkað
Nissan hefur seinkað komu nýja X-Trail sportjeppans á Evrópumarkað fram á sumar á næsta ári.
Bílaframleiðandinn gaf enga ástæðu varðandi breytinguna á þessari áætlun til næsta árs.
Kynntur í Shanghai
X-Trail var kynntur til sögunnar á bílasýningunni í Sjanghæ á mánudag, en hann muna koma á markað í Kína á síðari hluta ársins.
Frumsýningin á X-Trail mun ljúka við endurskoðun á sportjeppaflokki Nissan.
X-Trail verður seldur með möguleika á e-Power tvinnbúnaði Nissan, að því er fyrirtækið segir í yfirlýsingu. E-Power er röð tvinnkerfis þar sem vélin hleður rafhlöðu og hjálpar til við að knýja rafmótor frekar en að keyra hjólin beint.
E-Power mun verða frumsýnt fyrst í Evrópu á nýja Qashqai sportjeppanum, en tvinnútgáfur koma á næsta ári.
E-Power Qashqai mun nota 1,5 lítra bensínvél, sem bendir til þess að X-Trail muni nota svipaða uppsetningu. Báðar gerðirnar eru byggðar á sama CMF-C grunni. Nissan gaf ekki frekari upplýsingar um aflrásina.
Einnig sjö sæti og aldrif
Þessi nýja fjórða kynslóð af X-Trail mun bjóða upp á sjö sæta valkost í takt við yfirstandandi þriðju kynslóðar gerð sem kom til sögunnar á bílasýningunni í Frankfurt árið 2013.
Smíðaður í Japan fyrir Evrópu
Nissan hafði ætlað að byggja X-Trail í verksmiðju sinni í Sunderland á Englandi en breytti um skoðun árið 2019 og vitnaði í blöndu af Brexit óvissu og breyttri viðskiptastefnu. Nýi X-Trail verður smíðaður í Japan fyrir Evrópu.
Qashqai kemur í sumar og Arya í árslok
Frumsýning á X-Trail mun ljúka við endurskoðun á jeppasviði Nissan, frá og með Juke litla jeppanum árið 2019 og áfram með Qashqai sem kemur á markað í sumar á þessu ári.
(Automotive News Europe – myndir Nissan)
Aðrar umfjallanir
Þegar Suzuki sýndi frá sér tvö af hugmyndum sínum um bílasýninguna í Tókýó, var einn „kei“-bíll sem kallaður var Waku Spo.
Ef þig hefur einhvern tímann langað til að láta kappakstursbílstjóra aka þér um Nürburgring brautina, eða „Græna Helvítið“ eins og hún er kölluð, en þér er umhugað...
Timbraðir bílar og annað sem stingur í augun ratar stundum á uppboð, einkum í álfu timburmannanna, Norður-Ameríku. Þar byrjuðu menn á því að fara með parketið út úr húsum og utan á bíla. Enginn veit af hverju. Held ég.
Sumir safna númeraplötum, aðrir frímerkjum, enn aðrir punktum „á ökuskírteinið“ og svo eru þeir til sem safna ökuskírteinum. Ökuskírteinum fræga fólksins. Þau hafa nefnilega nokkur ratað á uppboð en oftast er um að ræða skírteini látinna einstaklinga þó til séu dæmi um hið gagnstæða.